samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Hv. þingmaður kom sömuleiðis inn á í sinni ræðu og gerði að umtalsefni það sem snýr að reiðvegum og reiðstígum, held ég að hafi verið, við skulum bara tala um reiðvegi. Nú er hestamennskan stór atvinnugrein í Suðurkjördæmi og stendur sennilega fremst allra kjördæma hvað það varðar varðandi fjölda ræktunarbúa, tamningastaða o.s.frv. Sömuleiðis er náttúrlega mikill ferðamannaiðnaður tengdur hestamennskunni og margar skemmtilegar reiðleiðir í boði á svæðinu. Ég ætla bara að halda mig við forgangsatriði; hv. þingmaður getur þá komið því á framfæri í ræðustóli Alþingis til áhugasamra sem eru að horfa á þessa útsendingu og fylgjast með sínum þingmanni úr Suðurkjördæmi flytja hér ræðu í samgönguáætlun: Hvar telur hv. þingmaður að sé mesta þörfin fyrir úrbætur sem snúa að reiðvegagerð í hennar kjördæmi? Þetta er stór spurning en ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur öll sem ætlum að reyna að treysta og efla reiðvegagerð á Íslandi að forgangsraða og ráðast í þetta stóra og mikla verkefni vegna þess að þetta er gríðarlega mikilvæg samgöngubót, reiðvegir.