157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:19]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Reiðvegir, hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, eru mikilvægir. Ég tel að forgangsröðun þeirra verkefna snúi að því að greina þau svæði. T.d. eins og ég þekki úr minni heimasveit, þar liggur þjóðvegurinn í gegnum sveitina, það eru engir svona hliðarsandar eða stór, opin svæði. Þar er einfaldlega bara landbúnaðarland og íbúabyggð næst þjóðveginum. Það þarf að byggja upp reiðvegi við þessi svæði þar sem maður er beinlínis á þjóðveginum til þess að komast frá A til B. Eyjafjöllin eru þar ofarlega. Ef maður fer á hestbaki frá Skógum austur til Víkur þá er maður minna við þjóðveginn því að þá getur maður farið niður á sandinn, sem er mjög falleg reiðleið í gegnum lúpínuna, ég mæli með því. Þetta er æðisleg leið. Ég mæli með því að allir fari þarna um á hestbaki. En já, forgangurinn er þar sem þeir spottar eru á þjóðveginum þar sem ekki er hægt að fara út af honum eða niður á sandana o.s.frv. Þannig að ég hlakka til að sjá þessa skýrslu starfshópsins sem á að skipa um reiðvegina, þ.e. ef hún er ekki komin út, og hlakka til að fara um þessa vegi á hestbaki í framtíðinni.