samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég ætla að gera að umtalsefni í þessari ræðu, og stikla aðeins á stóru, það sem snýr að tengivegum, héraðs- og styrkvegum og landsvegum utan stofnvegakerfisins. Það er áhugavert þegar farið er yfir nefndarálit meiri hluta þar sem dregnar eru fram í dagsljósið upplýsingar um vegalengd á þessum vegum sem ég tiltók hér áðan. Eins og tengivegakerfið sjálft, það er rúmir 3.500 km og náttúrlega bara stór þáttur af því að reyna að tengja saman þéttbýliskjarna sem tengjast síðan við stofnvegi. Þegar við erum að velta fyrir okkur sérstaklega hlutunum í Norðausturkjördæmi, þar sem eru malarvegir og vegir í dreifbýli, þá eru það nú héraðsvegir og styrkvegir sem eru þar undir meira og minna. Það eru 2.600 km, segir hér í nefndaráliti. Varðandi viðhald þeirra er gert ráð fyrir því í samgönguáætlun að það séu um 100 millj. kr. í fjárveitingu á ári til héraðsvega og er gildistíminn þá á áætluninni. Ég verð að segja að það er frekar aumt skammtað þegar kemur að þessum vegarkafla í ljósi þess að tengivegirnir, sem eru 3.500 km, virðulegi forseti, eru á fjárveitingu með eitthvað um 2,2 milljarða.
Ég geri mér grein fyrir því að tengivegir eru gríðarlega mikilvægir og þar er miklu meiri umferð en á þessum héraðsvegum. En það er kannski vandamálið sem við höfum verið að benda á hér í umræðunni, að þegar við erum í samfélögum þar sem fáir búa þá er því miður tilhneiging til þess að þeir séu látnir sitja á hakanum, þ.e. vegir í dreifbýli þar sem fáir íbúar búa, t.d. inn til dala og í hinum dreifðu byggðum og sérstaklega eins og er í Norðausturkjördæmi, í sveitunum, í Þingeyjarsýslu, í Eyjafirði og sömuleiðis í Múlasýslu. Það er mjög áhugavert ef maður hugsar til baka hvað við höfum látið þetta viðgangast lengi, að við höfum svona hummað það fram af okkur að fara í þessi verkefni og ég held að það geri sér allir grein fyrir því að það er mjög mikilvægt að fara í þessi verkefni. En fjármagnið er nú það sem ræður för og það er svo sem ekki hægt að gera allt. En ég er þeirrar skoðunar að ef við ætlum að treysta byggð og styrkja byggð í landinu sé lykillinn bættar samgöngur. Það er lykillinn að því að við fáum þá yngra fólk jafnvel til að flytja heim eða setjast að í hinum dreifðu byggðum. Oftast tengist sú búseta nú landbúnaði en sömuleiðis eru náttúrlega önnur atvinnutækifæri. Um leið og samgöngukerfi í dreifbýli er styrkt og bætt er alveg ljóst að það gefur viðkomandi aðilum líka tækifæri til að sækja vinnu heiman frá sér. Það er stór munur á því fyrir fólk sem þarf að keyra mikið að það geti keyrt um á þokkalegum vegum með bundnu slitlagi eða þá handónýtum vegum, malarvegum, jafnvel með stórgrýti eða drullu. Því miður er það allt of algengt að íbúum í hinum dreifðu byggðum sé boðið upp á svona kosti til að keyra á á hverjum degi.