samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir tækifærið til að dýpka umræðuna um þetta. Það er þannig að breytingartillögur meiri hlutans, sem eru þó nokkrar, eru allar svona einhvers konar óskalisti en aldrei króna. Síðan kemur þetta sama fólk og segir: Samgönguáætlun er fullfjármögnuð. Það sjá allir að þetta er þvæla. Ég skil eiginlega ekki af hverju þau ganga svona langt að halda þessu fram endalaust þegar hið augljósa er að svo er ekki.
Varðandi ferjurnar var verið að vinna að því að setja upp ferjuáætlun, þ.e. endurnýjun á ferjum. Ég hef það á tilfinningunni að þeirri tímalínu hafi einfaldlega seinkað af því að það hefur ekkert gerst í nærri tvö ár, í staðinn fyrir að setja það á dagskrá. Ég skrifaði lítið ávarp í Sjómannadagsblaðið í Eyjum og tók auðvitað undir þetta óboðlega ástand. Það væri óþolandi að horfa upp á hvernig það hefði verið í vor gagnvart Eyjamönnum og það þyrfti í raun og veru að fara að taka ákvarðanir um að hefja hönnun og byggingu á nýrri ferju, einfaldlega vegna þess að jafnvel þó að boranir og rannsóknir vegna jarðganga gangi vel erum við að horfa til einhvers árafjölda og það þarf að sinna því.
Á sama tíma er algerlega óboðlegt að rífa burtu Baldur af Breiðafirði þegar þessar aðstæður komu upp og skilja það fólk eftir allslaust vegna þess að hugmyndin var að þegar væri búið að ganga frá öllum vegaframkvæmdum á Suðurfjörðum Vestfjarða yrði hugsanlega mögulegt að leggja af þessar siglingar en eftir skoðun kom í ljós að það er útilokað. Annars vegar er farartálmi þar sem heitir Klettsháls sem þarf að gera jarðgöng undir til að hægt sé að losna við hann og hins vegar þarf auðvitað að sinna þjónustu við Flateyinga. Svo er þetta auðvitað bara hluti af því að hafa fjölbreyttari samgöngumáta, (Forseti hringir.) ekki bara fyrir íbúana heldur líka fyrir ferðaþjónustuna.