samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður heyrði ekki mál mitt en það var akkúrat það sem ég var að ræða hérna áðan. Ég var að leggja það til að við hættum að vera með sjóvarnir sem pínulítinn lið inni í samgönguáætlun vegna þess að þetta er verkefni sem er mörgum sinnum stærra en svo að það sé að einhverju leyti fjármagnað með því sem þar er gert. Svo held ég að vegna umfangs þessa verkefnis og eðlis þess þurfi menn að horfa til miklu lengri tíma, ekkert ósvipað og þegar menn fóru í ofanflóðagarðana, horfa bara til þess hvernig við ætlum að verja landið þar sem þarf að verja það til næstu áratuga og fara í þetta verkefni með þeim hætti. Ég held að það sé alla vega eitthvað sem við ættum að beina til núverandi ríkisstjórnar að hún hefji slíka vinnu. Þetta voru hugmyndir sem ég var búin að vera að ræða uppi í ráðuneyti á sínum tíma og við vorum aðeins byrjuð að skoða. En ég held (Forseti hringir.) að á allra síðustu árum, herra forseti, hafi tjón af völdum sjóvarna aukist svo mikið og þörfin fyrir auknar sjóvarnir vaxið svo að það er ekki skynsamlegt (Forseti hringir.) að hafa þetta með þeim hætti sem það er í dag.