157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:56]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig minnir að tölurnar séu einhvern veginn þannig að á þessu 15 ára tímabili í þessari samgönguáætlun séu 20 milljarðar. En ef við tökum samgönguáætlunina sem núverandi samgönguáætlun byggir á, og þurfti ekki einu sinni að fara í umhverfismat vegna þess að hún er sú sama, var upphæðin 23 milljarðar, þ.e. það vantar 3 milljarða þar upp á. Svo er sjálfsagt að umreikna einhverja vísitöluhækkun inn í þá tölu þannig að það eru alla vega einhvern veginn 3 milljarðar horfnir þar, eins og það voru horfnir 5 úr varaflugvallargjaldinu og 2 úr þjónustusamningnum. Hér er verið að taka peninga úr uppbyggingu samgangna í öllum málaflokkum. Þetta hefur auðvitað þær afleiðingar, ef sveitarfélögin treysta sér ekki til að fara í framkvæmdina sjálf á eigin vélarafli og treysta því að ríkið komi með peningana eftir eitt eða tvö eða þrjú ár, að menn taka þá ákvörðun að fresta framkvæmdum sem er miklu lógískara því það er varhugavert af sveitarfélögunum að lána ríkinu. Ef það er ekki loforð um það að peningarnir komi strax á næsta ári eða þarnæsta ári er þetta óvissuferð sem getur endað mjög illa fyrir hafnarsjóði viðkomandi sveitarfélaga.