157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:15]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við höldum áfram að ræða samgönguáætlun. Það er heldur betur búið að vera áhugavert að fylgjast með henni og taka þátt í umræðunni núna undanfarna daga. Þetta eru náttúrlega gríðarlegir hagsmunir fyrir okkur öll í þessu landi, fyrir okkur öll sem hér búum, sem hér starfa, og fólk sem sækir okkur heim í auknum mæli, að samgöngur séu öruggar, áreiðanlegar og góðar. Sitt sýnist hverjum og það er eðlilega verið að tengja þessi mál við frumvarp um stofnun innviðafélags og hvernig þetta eigi allt að tala saman og hvort komi á undan, eggið eða hænan, hvort innviðafélagið sé svona apparat sem eigi að grípa verkefnin og sem hægt sé að ýta málum inn í og að þau muni hugsanlega bjargast þar.

En mig langar aðeins að fara inn í mitt kjördæmi, sem ég er fulltrúi fyrir, Suðvesturkjördæmi. Það hefur sem betur fer verið mikil áhersla á það í umræðunni hérna að ræða samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu, í höfuðborginni og í kjördæminu öllu. Það er talsverð nýlunda, að mér skilst, að svo mikill fókus hafi verið á það svæði í þessari umræðu enda er það ekki skrýtið því að samgöngumál eru búin að vera undanfarin ár hérna á svæðinu, og ekki síst í höfuðborginni og í sveitarfélögunum sem tengjast henni og eru næst henni, mikið umræðuefni og áhyggjuefni og voru í síðustu sveitarstjórnarkosningum eitt allra stærsta málið. Það tengist óneitanlega skipulagsmálum á svæðinu. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins hefur því eðli málsins samkvæmt blandast inn í þessa umræðu. Þótt honum sé í rauninni bara lýst í samgönguáætluninni og sé ekki beinlínis hluti af henni hefur hann verið ræddur og vísað til þess að jafnvel einstök verkefni innan hans, eins og úrbætur á vegi sem mér er mjög hugleikinn og okkur mörgum, ekki síst sem búum í Hafnarfirði og á svæðinu, þ.e. kaflinn á Reykjanesbraut frá Lækjargötu að Álftanesvegi eða Kaplakrika, eins og flestir kannast við. Þar myndast gríðarlega mikil teppa og sker í sundur bæjarfélagið. Þannig að það er mjög heitt og áríðandi mál að almennileg tenging bætist við og úrlausn á þeirri stíflu sem þar myndast. Það er mikið hagsmunamál fyrir alla sem fara um þennan veg, en tugþúsundir bíla fara þar í gegn á hverjum einasta degi. Eins og ég hef áður bent á hérna í þessari umræðu undir þessum lið er það orðið kappsmál og kominn meirihlutavilji fyrir því í Hafnarfirði að það verði gerð göng, jarðgöng, undir Setbergshamarinn sem svona aukaleið, aukatenging á milli bæjarfélaga, því að eins og þetta er núna þá er í rauninni bara þessi eina akstursleið sem hægt er að fara til að fara til Reykjaness. Hvaðan sem þú kemur af höfuðborgarsvæðinu eða annars staðar að af landinu þá er þetta algerlega aðalleiðin og sker í sundur hverfi í Hafnarfirði þannig að þetta er gríðarlega mikið hagsmunamál fyrir Hafnfirðinga og fyrir atvinnusvæðið í Hafnarfirði sem hefur byggst mjög hratt upp á undanförnum árum.

Fyrirtæki, ekki síst úr Reykjavík, hafa verið að koma í stríðum straumum inn í nýtt atvinnusvæði sem hefur verið byggt upp í Hafnarfirði. Það er auðvitað mikill fjöldi bifreiða sem því fylgir; fólk að koma til og frá vinnu og flutningar og annað slíkt. Þannig að það er gríðarlega mikilvægt að þarna komist á almennileg tenging á milli. Í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins er gert ráð fyrir fjármagni, og það náðist í gegn meira fjármagn til þessarar framkvæmdar en verið hafði í öðrum samgönguáætlunum áður en til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins kom. Var það mikið fagnaðarefni og ákveðin kaflaskil þegar það var viðurkennt að það þyrfti umtalsverða upphæð til þess að gera almennilega bragarbót á þessum kafla. Eins og það stendur núna eru það á bilinu 11–12 milljarðar sem samgöngusáttmálinn gerir ráð fyrir í framkvæmdina. En það er ekki nóg fyrir jarðgöngum þannig að verið er að ræða og hugsa hvers konar flýtiframkvæmd eða einkaframkvæmd væri mögulega hægt að fara í þar til að ná þessum breytingum í gegn hratt og vel. Við þekkjum dæmi af slíkum framkvæmdum, eins og Hvalfjarðargöngunum þar sem var rukkað inn í ákveðinn tíma á meðan kostnaðurinn var að nást. Það væri hægt að hugsa sér eitthvert slíkt varðandi Setbergsgöngin. En það er áhugavert að í meirihlutaáliti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis er lagt til og ávarpað að Setbergsgöng geti komið til greina sem framkvæmd inni í innviðafélagi og hefur verið stjörnumerkt, eins og það heitir núna, í samgönguáætlun. Það eru nokkur verkefni, stór verkefni, sem eru stjörnumerkt í samgönguáætlun en það fylgir þeim ekki fjármagn og engin áætlun þannig lagað. En það er verið að nefna það í fyrsta sinn og verður alveg áhugavert að taka það lengra.

Ég nefndi þennan möguleika við hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson hér í umræðum í dag. Hann var nú innviðaráðherra til margra ára og öllum hnútum kunnugur gagnvart samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og bara þessum samgöngumálum yfirleitt og jafn vel á höfuðborgarsvæðinu sem annars staðar, enda urðu mikil framfaraskref í hans tíð sem við erum öll þakklát fyrir. Honum leist nú ekkert sérstaklega á að vera stjörnumerkja svona í samgöngusáttmála og nefndi að þetta væri kannski framkvæmd sem ætti betur heima sem sérstakt verkefni inni í Betri samgöngum, sem eru nú þegar til. En eins og við höfum heyrt hérna og þekkjum þá eru menn ekki alls kostar sammála um hvernig innviðafélagið, sem nú er verið að boða, eigi að virka og hvort það virki og hvernig það muni geta tekið þessi stóru verkefni að sér víðs vegar um landið. Með því, ef það verður að veruleika, er í rauninni verið að búa til þriðju stofnunina eða félagið sem sér um framkvæmdir í landinu: Við erum með Vegagerðina, við erum með Betri samgöngur og þá myndi innviðafélagið bætast þar við.

Það er því heilmikið verið að ræða í þessu öllu og innviðafélagið verður aftur á dagskrá eftir að umræðum um samgönguáætlun lýkur í kvöld eða á morgun.

Í rauninni ætlaði ég í þessari seinni ræðu minni að tala meira um Elliðavatnsveginn svokallaða, ég á það þá inni í næstu ræðu. Það er vegur sem liggur í gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ og Kópavog og er í daglegu tali kallaður Flóttamannavegur og er notaður í síauknum mæli af fólki sem ferðast á milli þessara bæjarfélaga. Það eru 2.000–3.000 bílar á dag og það er áætlað að á næstu 14 árum megi gera ráð fyrir því að 12.000 manns nýti sér veginn á degi hverjum. Það er samkvæmt skýrslu vinnuhóps sem hefur verið að skoða þessi mál með aðkomu Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, Garðabæjar og Kópavogs. Hann hefur komist að því að Flóttamannavegurinn, endurbyggður og lagaður, yrði mjög mikilvæg viðbót inn í samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins og að árið 2040 muni allt að 12.000 manns nýta sér veginn á degi hverjum.