samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Það var áhugavert að hlusta hér á orðaskipti hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur og hv. þm. Höllu Hrundar Logadóttur. Þær voru hér að ræða hluti sem eru í rauninni ekki undir í þessari umræðu, en ættu auðvitað að vera í forgrunni því þetta eru stóru upphæðirnar, og það er það sem snýr að samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Það er alveg ótrúlega skrýtið að það hafi einhvern veginn aldrei orðið, þrátt fyrir beiðni þar um — og ég er með tillögu sem ég vona að verði samþykkt sem mun ekki leysa allan vanda en þar er gerð tilraun til að koma þessum gríðarlega háu fjárhæðum og stórum málum, sem eru samgöngumálin á höfuðborgarsvæðinu, að þau verði rædd hér í þessum sal. Því það er þannig, virðulegi forseti, að það eru hv. alþingismenn sem bera ábyrgð á þeim.
Fjárframlögin í samgöngusáttmálann koma að langstærstum hluta frá ríkinu. Við erum með félag sem heitir Betri samgöngur sem við höfum engan aðgang að. Ég veit að þau koma fyrir hv. fjárlaganefnd en enginn sem kemur frá því félagi kannast við hvað er í gangi. Þar er t.d. fjármögnunin að stærstum hluta sú, og hún er ófrágengin og ófjármögnuð, að það á, og átti fyrir nokkrum árum síðan, að byrja að taka veggjöld sem eiga að skila 143 milljörðum upp í þessa rúmlega 311 milljarða sem samgöngusáttmálinn á að kosta. Sömuleiðis fóru menn í ótrúlega galna feigðarför sem gekk út á það að, af einhverjum ástæðum, fékk samgöngufyrirtæki sem er í eigu ríkisins og enginn hefur aðkomu að, Betri samgöngur, Keldnalandið og fór að skipuleggja það. Það er versta skipulag sem hefur sést í mannheimum. Ekki er gert ráð fyrir neinum bílastæðum uppi í Grafarvogi og ef þú fékkst bílastæði áttir þú að ganga mörg hundruð metra. Þarna átti að troða nokkurn veginn sama fjölda á lítið svæði og býr í öllu hverfinu; allt algjörlega galið.
Fyrir borgarstjórnarkosningar kannaðist enginn stjórnmálaflokkur við þetta. Stefna Sjálfstæðisflokksins hefur verið skýr, við höfum verið að tala gegn þessu Keldnalandsrugli frá fyrsta degi, en það fannst enginn flokkur sem kannaðist við að styðja það þegar á hólminn kom. Ég þekki það bara mjög vel vegna þess að ég fór á nokkra fundi frambjóðenda og þar var enginn sem kannaðist við að hafa stutt eða viljað styðja mál sem hefur kostað svona 100–200 milljónir fyrir skattgreiðendur á Íslandi.
Við erum heldur ekki að ræða Sæbrautina, Sæbrautarstokkinn eða þær framkvæmdir sem eru til staðar. Við erum ekki að ræða Sundabraut eða Sundagöng, sem eru stórmál, forgangsmál, en þar eru menn enn og aftur að reyna það sama og er búið að reyna síðustu 30 árin, alltaf með sömu niðurstöðu, að segja að það séu of margir gallar á þeirri útfærslu, svo það hefur aldrei farið áfram.
Ég var að fá mjög athyglisvert svar, virðulegi forseti, frá innviðaráðherra við fyrirspurn frá mér um afkastagetu Sæbrautar. Til að gera langa sögu stutta þá er allt í einu orðin gríðarleg aukning á Sæbrautarstokknum varðandi afkastagetu; hún er orðin 3+3. Guð láti gott á vita en það er ekki trúverðugt að við séum að sjá þetta núna eftir að aðrar upplýsingar hafa komið munnlega í umræðum um þetta mál í nefndum.
Síðan ætla menn að setja hér borgarlínu þvert um Sæbraut og bara svo ég lesi það upp, virðulegi forseti, þá segir hér í svari um borgarlínu á Sæbraut yfir suðurenda:
„Yfir suðurenda Sæbrautarstokks munu sérakreinar fyrir almenningssamgöngur þvera stokkinn og liggja um nýja skiptistöð þar sem sex leiðir munu fara um. 78 vagnar á klst. munu aka í báðar áttir yfir Sæbrautarstokk þegar mest lætur miðað við fyrirliggjandi áætlanir. Þetta verður því ein stærsta stöð almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og fyrirliggjandi spár benda til að um 33 þús. manns á dag, yfir 5 þús. manns á klst., muni fara um stöðina og sérakreinar Borgarlínu yfir Sæbrautarstokk árið 2040.“
Hvorki meira né minna, virðulegi forseti. Ég held að það væri skynsamlegt fyrir þá sem bera ábyrgð á þessu, sem erum við, (Forseti hringir.) að rýna þetta og ýmislegt annað. Ég hef nú farið yfir hversu laust þetta er allt saman í reipunum (Forseti hringir.) í mínum fyrri ræðum en ég get ekki komist lengra, virðulegur forseti, (Forseti hringir.) því forseti er duglegur á bjöllunni og tíminn er búinn.