157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:47]
Horfa

Berglind Harpa Svavarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langar hér áfram í umræðunni um samgönguáætlun að fá að nefna einn mikilvægan innvið, brú í samgönguáætlun sem snertir Norðausturkjördæmi og er kjördæminu afar mikilvæg. Um leið sést hversu auðveldlega það gerist að verkefni á landsbyggðinni festast því miður í bið árum saman. Innviðurinn sem um ræðir er brúin yfir Jökulsá á Fjöllum. Árið 2013, fyrir um 13 árum síðan, kynnti Vegagerðin áform um nýja brú yfir Jökulsá á Fjöllum sem er afar mikilvæg brú á þjóðvegi 1 milli Austurlands og Norðurlands. Hengibrúin er 102 m löng og var reist árið 1947. Hún er því ekki byggð þannig að hún þoli mikla þungaflutninga sem fara þó þar um í miklum mæli. Stefnt var að því að framkvæmdir hæfust árið 2014 og að ný brú yrði tekin í notkun árið 2016. Þetta var og er gríðarlega mikilvæg framkvæmd. Verkefnið var komið framarlega í framkvæmdaröð þegar eldgos hófst í Holuhrauni árið 2014. Það þurfti því eðlilega að endurmeta forsendur og flóðahættu á svæðinu sem endaði með því að framkvæmdunum var frestað.

Það sem ég er að reyna að draga fram hér í dag er að meira en áratug síðar hefur brúin ekki risið. Ekki nóg með það heldur er hún endalaust færð aftar í samgönguáætlun og er í komandi samgönguáætlun áætluð í framkvæmd á árunum 2031–2040. Vegagerðin þarf að verja miklum fjármunum í sífellt meira viðhald til að halda brúnni opinni. Það er ekki er langt síðan ég sá auglýsingu um fyrirhugaðar lokanir á brúnni vegna viðhalds. Þær lokanir sem hófust 26. maí eru enn í gangi og standa yfir til 16. júní. Unnið er við brúna alla virka daga frá átta á morgnana til sjö á kvöldin og opnað er fyrir umferð fjórum sinnum á dag; þrisvar sinnum í hálftíma í senn og einu sinni í klukkutíma. Svo er hún opin að kvöldi fram á morgun. Þegar verkefni sitja of lengi á teikniborðinu hækkar kostnaðurinn. Viðhaldsþörfin vex líka og að lokum er verið að verja fjármununum okkar í að halda gömlum mannvirkjum gangandi í stað þess að byggja ný mannvirki, en í þessu tilviki var á sínum tíma mikil áhersla lögð á að framkvæmdir ættu að hefjast árið 2014.

Hvernig stendur á því að ekkert sést enn til nýrrar brúar yfir Jökulsá á Fjöllum? Maður þekkir nú aldeilis brúarframkvæmdir sem eru færðar aftar um heilt tímabil við hverja einustu samgönguáætlun. Mér fyndist afar áhugavert að heyra frá Vegagerðinni hvernig stendur á þessari forgangsröðun; af hverju afar mikilvægt var að drífa í framkvæmdunum árið 2014 og ljúka henni tveimur árum seinna en engin áhersla er lögð á að drífa í gang eins og er. Eins og áður sagði er þetta um 102 m löng hengibrú og var reist árið 1947 og er því heldur betur komin til ára sinna. Hún þolir ekki mikla þungaflutninga sem eru þó kjördæminu afar mikilvægir og í raun öllu landinu vegna þeirrar gríðarlegu verðmætasköpunar sem fylgir öflugu atvinnulífi fjórðungsins auk alls kjördæmisins. Nýjustu upplýsingar sem ég fékk að heyra um erfiðleika tengda þungaflutningum, sem eru þá frá Austurlandi og yfir á Norðurland, eru forsteyptar einingar sem eru steyptar hjá MVA, öflugu fyrirtæki á Egilsstöðum, sem flytja þarf norður í uppbyggingu á Akureyri. MVA þurfti að fækka steyptum einingum í flutningi vegna þeirra þyngdartakmarkana sem eru á mikilvægu hengibrúninni okkar.

Mér fannst ekki annað hægt en að nefna þessa mikilvægu framkvæmd hér í umræðunum undir samgönguáætlun og áhugaleysið á nýframkvæmdum. Brúin snertir allt Norðausturkjördæmi og átti að fara í framkvæmd árið 2014 en 12 árum seinna er ekkert að frétta af þeim framkvæmdum og verra en það því brúin er sett inn á samgönguáætlun árin 2031–2040. Ef sá tímarammi stenst þá væri þetta níu ára framkvæmdatími sem átti að vera einungis tvö ár, 2014–2016. (Forseti hringir.) Níu ára framkvæmdatími sýnir að lítill vilji er til framkvæmda á nýrri brú yfir Jökulsá á Fjöllum, myndi ég segja. Þetta er mjög miður.