innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu og ég þakka honum sömuleiðis fyrir að taka þátt í umræðunni því að stjórnarliðar hafa ekki gert mikið af því. Þó hefur komið fram í máli, held ég, allra stjórnarliða og menn hafa alveg viðurkennt að það hafi verið gerð mistök. En það skiptir gríðarlega miklu máli, því að við erum sammála um markmiðin, að tækið virki eins og það á að virka. Við erum hér að tala um fordæmi frá þeim löndum sem við berum okkur saman við, menn hafa nefnt Danmörku og Færeyjar, en í nefndaráliti sem hv. þingmaður skrifar undir er bara skrifuð allt önnur leið. Þá er bara talað um að það sé mikilvægt að hvert verkefni fyrir sig sé fjármagnað með þjónustugjöldum, sé opið og gagnsætt. Ef við förum þá leið erum við að fara þveröfuga leið við þessi innviðafélög sem menn hafa verið að horfa til sem gerir það að verkum að við getum alveg gleymt því að fara í mikið af þeim verkefnum sem menn hafa talað um í tengslum við þetta.
Ég ætla að spyrja aðeins hv. þingmann: Af hverju settuð þið þetta inn í nefndarálitið? Eða er þetta það sem menn vilja? Þetta er á bls. 3 í nefndaráliti meiri hlutans. Síðan er hitt að við erum með Betri samgöngur sem ég tel ekki að sé góð reynsla af. Þar er aðkoma Alþingis sú að hv. fjárlaganefnd fær Betri samgöngur í heimsókn og það er bara einhver hálftími eða þrjú korter sem koma aldrei aftur, það skiptir engu máli. Þeir hafa farið algerlega út af sporinu og út í mýri eins og í Keldnalandinu sem enginn vill kannast við og hafnað í borgarstjórnarkosningum. Finnst hv. þingmanni það að félagið komi fyrir þingnefndir vera nóg? Síðan spyr ég hv. þingmann, ég geri ráð fyrir að hann hafi ástríðu og skoðanir á því með Fljótagöng: Hvernig ætla menn að standa við það loforð um að fara í Fljótagöng?