innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans andsvar. Varðandi samanburðinn við Betri samgöngur sem hv. þingmaður kemur inn á þá verð ég að viðurkenna að ég þekki ekki nógu vel lögin sem Betri samgöngur starfa eftir en ég þekki ekki til þess að þar sé t.d. kveðið á um að það eigi sérstaklega að kynna samninga fyrir þingnefndum áður en þeir eru gerðir. Ég geri mér alveg grein fyrir hvaða fundi hv. þingmaður er að tala um, en það eru væntanlega ekki fundir sem skulu fara fram samkvæmt lögum til að kynna t.d. ákveðna samninga, heldur er frekar verið að tala um bara svona almenna fundi þar sem opinber hlutafélög koma og kynna fjárfestingarverkefni. Ég get alveg tekið undir að það hefði mátt huga betur að aðkomu Alþingis að verkefnum Betri samgangna, en mér finnst við kannski að einhverju leyti vera að læra af reynslunni hér með því að setja inn að það skuli vera kynnt áður en innviðaráðherra gerir samninga við félagið um tiltekin verkefni.
Síðan gleymdi ég að koma inn á það í ræðu minni, af því að það hefur verið mikil umræða hér um, eins og hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu á undan minni ræðu, að það gæti orðið einhvers konar einkavæðing innviða í skjóli nætur. Mér finnst þeir hv. stjórnarliðar sem hafa tekið til máls, til að mynda framsögumaður málsins, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, hafa talað um, frekar skýrt, að það þyrfti heimild í fjárlögum til að færa þegar byggð mannvirki inn í innviðafélagið. Þannig að það yrði aldrei gert í skjóli nætur, svo ég noti það orðalag. Varðandi það sem hv. þingmaður sagði — ég fæ hann kannski til að skýra betur út hvað það er nákvæmlega á bls. 3 sem hann talar um að við höfum sett inn í nefndarálitið sem hv. þingmaður vildi fá betri skýringar á. Ég óska eftir því að hann nýti seinna andsvarið til að skýra betur út hvað nákvæmlega hann á við.