157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[22:32]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við erum búin að taka þessa umræðu mjög mikið inni í þingsal. Þetta hefur verið uppistaðan í mínum ræðum fram til þessa, og ég hef spurt hv. framsögumann og ekki fengið svör við því. Ég er ekki með það fyrir framan mig en þetta er ofarlega á bls. 3 þar sem er sérstaklega tilgreint að það skipti máli að þetta sé opið og gagnsætt og að menn greiði þjónustugjöld fyrir hvert það mannvirki sem byggt er. En það þýðir t.d. að sérstakt samgöngukerfi sem hefur verið vitnað í og við fengum upplýsingar um, ekki í nefndinni heldur hjá sérfræðingnum sem þekkir þetta mál væntanlega hvað best, gengur ekki upp. Þetta gengur út á það að innviðafélag byggi upp eigið fé inni í félögunum og taki jafnvel fleiri en eitt verkefni í einu. Það er samkvæmt þeim reglum sem við þurfum að fara eftir af því að þetta tengist Evrópska efnahagssvæðinu og má ekki vera lengra en 150 km. Hins vegar liggur alveg fyrir að ef þessi texti fer í gegn óbreyttur þá er þetta ekki hægt. Þá myndi innviðafélagið alla vega ekki ná þessum markmiðum sem ég held að flestir hafi talið að það ætti að ná. Eftir stendur að við skiljum ekkert af hverju þetta er sett þarna inn og það virðist vera að meiri hluti nefndarinnar hafi algerlega misskilið málið.

Það er mjög mörgum spurningum ósvarað. Hv. þingmaður vísaði í Betri samgöngur. Það var ekki þannig að Betri samgöngur væru þannig kynntar að Alþingi ætti ekki að koma að því. Hugsunin var sú að þeir ættu auðvitað að koma að því. Það hafa verið umræður hér í þingsal í mörg ár um hversu veik aðkoman er. Að fara fyrir þingnefnd og tala við þingnefnd, með fullri virðingu fyrir því, ég hef nokkra reynslu af því og hv. þingmaður líka, mun ekki breyta einu eða neinu í því. Við erum búin að sjá það að menn eru byrjaðir að stjörnumerkja í samgönguáætlun verkefni sem augljóslega eiga ekki við þarna. Við þekkjum líka af fordæmum frá öðrum löndum að menn hafa breytt mikið lögunum akkúrat út af því að menn eru að taka á þessum verkefnum og ég skil ekki af hverju menn hafa ekki skoðað hvað kom upp á annars staðar, reynt að læra af bæði því sem hefur gengið vel og mistekist annars staðar.(Forseti hringir.) Fyrir mér er þetta mál vanbúið. Við erum að taka umræðu hérna klukkan hálfellefu á fimmtudagskvöldi og það eru enn þá engin svör við því hvernig menn ætla að koma til móts við þetta, enda skil ég það, þetta er flókið mál, en þetta er vanbúið mál.