innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans seinna andsvar. Ég held að ég skilji betur hvert hv. þingmaður er að fara með gagnrýni sína á það sem fram kemur í nefndaráliti. Ég sé ekki að þetta þurfi endilega að vera í beinni andstöðu við það að það séu skýr tengsl milli gjaldtökunnar sem greidd er af hendi við notkun mannvirkja og þess að við getum fengið fram snjóboltaáhrif þannig að fyrirtæki geti stækkað við sig og verið með aukið eigið fé til að ráðast í önnur verkefni.
Varðandi aðkomu þingsins þá ítreka ég það sem ég kom inn á áður að það þyrfti alltaf samþykki fyrir því í fjárlögum ef þegar byggð mannvirki yrðu færð til innviðafélagsins. Varðandi það hvort fundur eða kynning á samningum fyrir þingnefndum, umhverfis- og samgöngunefnd, sé nóg er það matsatriði og eitthvað sem við getum skoðað milli 2. umræðu og 3. umræðu. En það veitir alla vega aðhald sem ég tel að sé nauðsynlegt.