innviðafélag.
Virðulegi forseti. Já, við erum nú að ljúka þessari 2. umræðu um þetta mikilvæga mál og enn finnst mér ekki skýrt hvað á að gera hérna. Mér finnst það miður. Ég átta mig á því að hér eru þingflokksformenn að funda í herbergjum og hér er verið að semja um þinglok og ég veit að eitt af því er að þetta mál ætti að fara inn í nefnd milli umræðna. En mér finnst því mjög ábótavant að fulltrúar frá stjórnarmeirihlutanum komi þá ekki fram og segi okkur hvað það er sem þeir hyggjast gera, því hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson kom hérna með mjög mikilvægar ábendingar um að þessi snjóbolti sem búið er að lýsa fyrir okkur og er hugmyndafræðin á bak við þetta virkar ekki eins og málið er skrifað út núna. Það gengur ekki upp. Þá finnst mér nauðsynlegt að þeir sem stýra hér og þeir sem vilja ná þessu í gegn komi fram með það hvað það er nákvæmlega sem þeir ætla að gera á milli umræðna.
Ég óttast mjög að þetta verði þá afgreitt á einhverjum handahlaupum í næstu viku. Ég vildi bara nefna þetta aftur, ég kallaði eftir því fyrr í kvöld að hér kæmi einhver upp og myndi útskýra það hvernig þeir hyggjast bregðast við þessum mjög svo málefnalegu ábendingum og athugasemdum sem fram hafa komið frá minni hlutanum, og bara til að við séum líka alveg skýr á því að hér hefur fjöldi þingmanna í minni hlutanum lýst yfir stuðningi við stofnun einhvers konar innviðafélags. Við höfum líka lagt áherslu á að það sé vel gert, það sé skýrt hvað þau mega gera og hvernig það á að virka og það er það ekki eins og staðan er núna.
Virðulegur forseti. Mig langar, svo það sé öllum ljóst, aðeins að fá að lesa hérna aftur varðandi þennan kafla í nefndarálitinu sem heitir Veggjöld, hjáleiðir og almenningssamgöngur því að, og kannski er það eitthvert vantraust af minni hálfu, þessi kafli hræðir mig svolítið. Hérna segir:
„Meiri hlutinn leggur áherslu á að samfélagsleg sátt um notkun veggjalda byggist á skýrum og sanngjörnum forsendum. Almennt verði miðað við að veggjöld séu fyrst og fremst innheimt vegna nýrra framkvæmda eða verulegra samgöngubóta sem stytta ferðatíma, auka öryggi eða bæta þjónustu notenda með afgerandi hætti.“
Ég er sammála þessu, tek undir þetta. En svo heldur meiri hlutinn áfram, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn telur jafnframt mikilvægt að við mat á gjaldtöku verði horft til þess hvort almenningi standi til boða raunhæfir valkostir. Þar undir fellur bæði að almennt sé til staðar gjaldfrjáls hjáleið og að tryggð sé fullnægjandi og aðgengileg þjónusta almenningssamgangna. Slík nálgun styrkir bæði samfélagslegt réttmæti gjaldtöku og stuðlar að jafnræði í aðgengi að samgöngukerfinu. Sameiginlegur hópur sérfræðinga innviðaráðuneytis og fjármálaráðuneytis hefur lagst yfir hugmyndir þess efnis að almenningssamgöngur geti flokkast sem hjáleið samkvæmt markaðsprófi innviðafélags og litið sérstaklega til reynslu Dana og Norðmanna, en veggjöld eru jafnframt að einhverju leyti nýtt í bæði rekstur og uppbyggingu innviða almenningssamgangna annars staðar á Norðurlöndum. Þannig renna veggjöld að hluta í rekstur almenningssamgangna á þéttbýlissvæðum í Noregi sem hluti af heildstæðu samgöngukerfi.“
Það er í þessum lokakafla hér sem mér finnst meiri hlutinn vera að undirstrika það að almenningssamgöngur geti flokkast sem hjáleið samkvæmt markaðsprófinu. Og ég sé ekki fyrir mér — hér er búið að ræða Akureyri, Þelamörk og Kjalarnesveginn eða Vesturlandsveg um Kjalarnes, sem hafa verið nefnd sem stjörnumerkt, sem auðvitað enginn skilur, en sem einhvers konar möguleg verkefni fyrir innviðafélagið. Mér finnst meiri hlutinn vera að selja þá hugmynd að það sé vel hægt að fara í þessar framkvæmdir og hjáleiðin sé þá almenningssamgöngur og alveg eins og hv. þm. Ingvar Þóroddsson tók fram hérna áðan þá er það auðvitað ekki raunhæfur kostur þegar það er bara hluti af leiðinni sem þú ætlar, það segir sig sjálft. En hvað þýðir þetta? Hvað þýðir þessi texti? Í hvaða tilfellum er hægt að líta á almenningssamgöngur sem hjáleið? Í hvaða tilfellum gæti það flokkast þannig undir hjáleið hjá þessu innviðafélagi?
Það er auðvitað ýmislegt fleira í þessu frumvarpi en ég get ekki annað en borið eitthvert traust og miklar væntingar til þess að málið taki breytingum á milli 2. umræðu og 3. umræðu svo hægt sé að afgreiða þetta mál út í sæmilegri sátt. Ég tek undir það og skil mikilvægi þess að við förum í öfluga innviðauppbyggingu og bætum úr samgöngum og ég trúi því alveg að innviðafélag geti verið ein leið í þeim efnum. Þá verður auðvitað að vera skýrt hvernig hún á að virka og að lögin raunverulega virki og séu að gera það sem ætlast er til af þeim í þessari hugmyndafræði.