fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta fjárlaganefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Hér er ég með tillöguna í bundnu eintaki.
Tillagan sem hér er til umfjöllunar byggist á lögum um opinber fjármál þar sem kveðið er á um að ráðherra skuli árlega leggja fyrir Alþingi stefnumörkun í opinberum fjármálum til næstu fimm ára hið skemmsta. Sú stefnumörkun skal byggjast á grunngildum fjármálastefnu.
Fjárlaganefnd hefur fjallað um málið á fjölmörgum fundum frá því að málinu var vísað til hennar um miðjan apríl síðastliðinn og mér er ljúft að þakka nefndarmönnum öllum fyrir mjög gott samstarf í nefndinni og góð vinnubrögð við yfirferð málsins. Við umfjöllunina kallaði nefndin til sín alla ráðherra ríkisstjórnarinnar sem fóru hver fyrir sig yfir helstu markmið og mælikvarða og áskoranir á þeim málefnasviðum sem undir þá heyra. Þá bárust nefndinni fjölmörg erindi eða 47 umsagnir frá ýmsum aðilum samfélagsins og á fund okkar komu 16 þeirra og fylgdu sínum erindum eftir. Öll gögn málsins eru aðgengileg á vef þingsins.
Það er gott að taka það fram að hér er um leiðarstef að ræða þar sem stefna ríkisstjórnarinnar birtist tölulega, en hér birtast ekki niðurnjörvuð fjárframlög upp á krónu fimm ár fram í tímann. Það segir í lögum um opinber fjármál að það eigi að koma fram markmið um afkomu og efnahag, þróun skatta og aðra tekjuöflun, þróun gjalda og sundurliðun eftir málefnasviðum og hagrænni flokkun. Við erum ekki að tala um útgjöld upp á krónur og aura heldur miklu frekar stefnuna eins og hún kemur fram og hún birtist tölulega í þessu plaggi sem er hér til umræðu.
Efnahagsforsendur áætlunarinnar eru ein af grundvallarforsendum þess mats sem fram fer á tekjum, útgjöldum, afkomu og skuldastöðu hins opinbera á tímabili áætlunarinnar. Traustar, gagnsæjar og varfærnar efnahagsforsendur skipta því verulegu máli. Það er mikilvægt nýmæli við afgreiðslu þessarar áætlunar að nú hefur verið gerð sú breyting að efnahagsforsendur ríkisfjármála byggjast á spám Seðlabanka Íslands í stað þjóðhagsspár Hagstofunnar. Á tímabili fjármálaáætlunar 2027–2031 er gert ráð fyrir hóflegum en stöðugum hagvexti á bilinu 2,2–2,4% og að meðaltali 2,3% á tímabilinu. Það er mat meiri hlutans að þessar forsendur séu varfærnar og endurspegli raunsæja sýn, sérstaklega í ljósi þeirrar óvissu sem einkennir alþjóðleg stjórnmál og efnahagslíf. Spár Seðlabankans eru birtar á þriggja mánaða fresti. Þær breytast að einhverju marki á milli tímabila innan ársins sem hefur áhrif á forsendur, bæði til lækkunar og hækkunar, þannig að í forsendum fjármálaáætlunar, það kemur fram á bls. 35, er ekki gert ráð fyrir uppfærslu á forsendum þó svo að það komi fram ný þjóðhagsspá frá Seðlabankanum. En í umræðunni síðustu daga hefur gætt misskilnings hjá ýmsum aðilum í samfélaginu, þ.e. að það eigi að uppfæra þetta bara í rauninni þegar ný þjóðhagsspá kemur út. En í fjármálaáætluninni sjálfri á bls. 35 kemur beinlínis fram að það er ekki gert ráð fyrir því.
Frú forseti. Framleiðnivöxtur er ein mikilvægasta forsenda hagvaxtar til lengri tíma litið. Þó að hagvöxtur í heild geti verið jákvæður vegna fjölgunar fólks á vinnumarkaði er það hagvöxtur á mann og aukin framleiðni vinnuafls sem raunverulega knýr fram bætt lífskjör. Frá 2015 til 2025 var hagvöxtur á mann að meðaltali um 1% en á tímabili þessarar áætlunar er gert ráð fyrir 0,5%. Til að styðja við sjálfbæran vöxt þurfum við sem samfélag að leggja áherslu á menntun, nýsköpun, tækniframfarir og markvissar þjóðhagslegar, arðbærar innviðafjárfestingar og það er einmitt það sem umrædd fjármálaáætlun gerir ráð fyrir. Fjölmörg tækifæri eru á Íslandi til að styðja við aukna framleiðni og hagvöxt og undirbyggja þar með almenna velsæld. Með góðri atvinnustefnu sem styður við fjölbreytni og verðmætasköpun er hægt að ná fram aukinni framleiðni og stöðugum hagvexti. Á Íslandi hafa farið vaxandi ýmsar greinar sem búa til mikil verðmæti, svo sem hugvitsgreinar og lyfja- og tæknigeirinn, en tækifærin eru miklu víðar, m.a. í framþróun landbúnaðar, auknum veiðum með því að fara yfir nýtingarstefnu Hafrannsóknastofnunar og stuðla að vinnslu á fiski innan lands þannig að hann fari ekki óunninn í gámum úr landi og útbúa þannig reglur að innlendum framleiðendum gefist kostur á að skapa enn meiri verðmæti úr íslensku hráefni. Enn fremur eru nýjar sprotagreinar m.a. að vinna enn frekar úr verðmætum úr þara og fleira þess háttar. Tækifærin eru víða til framþróunar atvinnulífsins og það er ekki hörgull á þeim.
Frú forseti. Hvað varðar útgjaldaþróun, ef við lítum til þróunar ríkisútgjalda á komandi árum og berum saman við undangengið tímabil, er skýrt að aðhalds er gætt í þessari áætlun. Á tímabilinu 2026–2031 er gert ráð fyrir raunvexti útgjalda sem nemur um 103 milljörðum kr., sem jafngildir 8% hækkun. Til samanburðar hækkuðu rammasett útgjöld að meðaltali um 215 milljarða kr. á fimm ára tímabili eða 19% í tíð fyrri ríkisstjórnar þannig að vöxtur útgjalda var miklum mun meiri hjá fyrri ríkisstjórn. Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er því að færa hlutina til mun betri vegar heldur en fyrri ríkisstjórn viðhafði. Langstærsti hluti þessarar hækkunar rennur til heilbrigðis- og félagsmála, heilbrigðisráðuneytið og málefni aldraðra taka til sín um 92 milljarða af þessum 103 milljörðum kr., á meðan önnur málefnasvið hækka nettó einungis um 11 milljarða kr. og sum dragast beinlínis saman. Það er ágætt að geta þess að það er gert ráð fyrir að framlög til æðstu stjórnar ríkisins muni lækka að raungildi um 1,2 milljarða kr. á tímabilinu.
Meiri hlutinn aflaði sér einnig gagna um þróun ársverka ríkisstarfsmanna. Á árunum eftir bankahrunið fækkaði ársverkum ríkisstarfsmanna úr 17.911 talsins árið 2008 niður í 16.180 árið 2014. Eftir það tók þeim að fjölga á ný og voru í heildina 20.961 talsins í fyrra. Rúmlega 62% af þeirri fjölgun eru til komin vegna fjölgunar starfsfólks á heilbrigðissviði; á Landspítala, á heilsugæslunni og á heilbrigðisstofnunum um land allt. Þá hefur ársverkum í löggæslu fjölgað um 450 talsins frá árinu 2015. Þar að auki hafði stytting vinnuvikunnar, sérstaklega í vaktavinnustörfum, þau áhrif að fjölga þurfti fólki til að halda uppi sömu þjónustu. Það er því skýrt að þessi fjölgun hefur farið í velferð og öryggi borgaranna. En meiri hlutinn leggur ríka áherslu á að framvegis verði beitt meira aðhaldi og það er miðað við að ríkisstarfsmönnum fækki um 1% á næsta ári, ríkisstofnanir hagræði og þeim fækki um 15% með sameiningum á kjörtímabilinu.
Ég vil þá víkja að þeirri sýn sem þessi áætlun birtir um afkomu ríkissjóðs. Meiri hlutinn fagnar því sérstaklega að stefnt er að hallalausum fjárlögum ríkissjóðs strax á næsta ári eða árið 2027. Ekki er stefnt að miklum afgangi en þetta er gríðarlega mikilvægur áfangi í ríkisfjármálum sem gengur mun lengra en lágmarkskröfur hinnar svokölluðu stöðugleikareglu kveða á um. Afgangur af ríkisrekstri er öruggasta leiðin til að búa í haginn fyrir óvænt áföll. Til að ná þessu markmiði þarf að fylgja eftir afkomubætandi ráðstöfunum bæði á gjalda- og tekjuhlið. Á tekjuhliðinni gerir áætlunin ráð fyrir að loka glufum, draga úr undanþágum og treysta skattstofna. Það virðast liggja augljós tækifæri í því að auka gagnsæi hvað varðar verðmyndun á útflutningsverði sjávarafurða. Það liggur fyrir t.d. að ef verð á loðnu væri með svipuðum hætti hér og í Færeyjum myndi það hafa verulega jákvæð áhrif á tekjuhlið ríkissjóðs.
Aðhald í ríkisfjármálum má hins vegar ekki verða til þess að við fórnum nauðsynlegri uppbyggingu samfélagsinnviða. Þvert á móti gerir þessi fjármálaáætlun ráð fyrir áframhaldandi öflugri fjárfestingu. Fjárfesting ríkissjóðs í efnislegum eignum mun nema á bilinu 117–133 milljörðum kr. árlega á tímabilinu og framlög til samgöngu- og fjarskiptamála verða ríflega 75 milljarðar kr. á ári. Meiri hlutinn styður eindregið þau áform að koma á laggirnar sérstöku innviðafélagi til að flýta, fjármagna og framkvæma stór innviðaverkefni um land allt. Sú mikla uppbygging sem fram undan er í húsnæðis- og innviðamálum verður hins vegar ekki unnin af ríkinu einu. Sveitarfélögin munu taka verulegan þátt í fjárfestingunum fyrir örugglega hundruð milljarða króna. Meiri hlutinn leggur því ríka áherslu á gott samstarf ríkis og sveitarfélaga og að það verði eflt. Við þurfum að tryggja að fjárhagslegt svigrúm sveitarfélaganna dugi til að mæta fólksfjölgun á vaxtarsvæðum með nýjum innviðum, leikskólum, skólum og gatnakerfi. Samhliða auknum stuðningi ríkisins telur meiri hlutinn eðlilegt að tengja ívilnanir við það að sveitarfélög skipuleggi fjölbreytt húsnæði, tryggi framboð á félagslegu húsnæði og mæti sérstaklega þörfum ungs fólks og fyrstu kaupenda.
Í fjármálaáætluninni er einnig tekið á breyttri stöðu í alþjóða- og öryggismálum. Framlög til almanna- og réttaröryggis verða rúmlega 52 milljarðar kr. á næsta ári. Breytt heimsmynd kallar á að við uppfyllum okkar skuldbindingar gagnvart Atlantshafsbandalaginu og eflum viðnámsþrótt okkar eigin samfélags, m.a. með því að tryggja netöryggi, efla landamæraeftirlit og að styrkja Landhelgisgæsluna. Það felast einnig tækifæri í því að þjóðin leggi aukna áherslu og krafta í að leita leiða til friðsamlegra lausna deilumála. Það eru nefnilega tækifæri í því líka að vera talsmenn friðar, við sem erum vopnlaus þjóð að mestu, í stað þess að setja alla áherslu í öryggismálum á vopn og vopnakaup og þátttöku í hernaðarbandalögum.
Þá þurfum við að huga að orkuöryggi þjóðarinnar. Álag á orkukerfið hefur aukist og ljóst er að þörf er á bæði nýrri orkuvinnslu og aukinni flutningsgetu. Meiri hlutinn fagnar yfirvofandi skýrri lagaumgjörð um vindorku til að hægt verði að byggja upp orkukost í sátt við nærsamfélög því öruggur aðgangur að orku er grundvöllur orkuskipta, samkeppnishæfni og atvinnuuppbyggingar í landinu öllu. Einnig tel ég rétt að menn hugi að því að koma betri stjórn á það þegar koma hér inn nýir kostir, það verði miðlæg stjórn á því, það myndist ekki hér umframeftirspurn eftir orku sem setur aukið álag á kerfið.
Meiri hlutinn vekur einnig athygli á fjölmörgum öðrum stefnumiðum sem fram koma í áætluninni. Þar má nefna hröðun á uppbyggingu samgönguinnviða, bæði með auknum fjárveitingum og með stofnun sérstaks innviðafélags, eins og áður segir. Það er víða hugað að því að byggja upp innviði.
Að lokum er mikilvægt að nefna mennta- og menningarmál sem nema um tíunda hluta heildarútgjalda ríkisins. Áætlunin gerir ráð fyrir að efla STEM-greinar, það er gert ráð fyrir uppbyggingu verknámsaðstöðu í fimm skólum og aukinni áherslu á skapandi greinar. Sömuleiðis eru í kortunum stór menningar- og íþróttamannvirki líkt og ný þjóðarhöll og aðstaða fyrir Listaháskóla Íslands og svo má lengi telja.
Ég ætla að láta þessari ræðu minni nú brátt lokið um þessa tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 og ég ítreka þakkir mínar til nefndarmanna fyrir gott samstarf við afgreiðslu þessa stóra og mikilvæga máls. — Ég hef lokið máli mínu.