fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Það er dapurlegt að verða vitni að þessu. Við erum komin á þann stað — virðulegur forseti, fæ ég bara eina mínútu í fyrra andsvar?
(Forseti (ÞSv): Fjórir í andsvörum, ein mínúta í öllum umferðum.)
Það er dapurlegt að upplifa það að hér kemur meiri hlutinn og viðurkennir það sem menn eru búnir að vita núna í nokkrar vikur, að forsendur eru brostnar, og ætlar ekki að bregðast við því. Við breyttum lögum um opinber fjármál þannig að það myndi verða byggt á traustari grunni, áætlanir yrðu skýrari og það er líka fyrirsjáanleikinn. Við eigum að byggja fjárlög samkvæmt lögum á þessari áætlun. Er það svo, virðulegi forseti, að meiri hlutinn ætli ekki að uppreikna þetta? Það er búið að bjóða meiri hlutanum að hafa hér stubb í ágúst sem við þyrftum hvort sem er að gera til að ræða ESB-málin. (Forseti hringir.) En er það þannig og er það skoðun hv. formanns fjárlaganefndar að menn ætli ekki að vinna vinnuna sína og uppfæra þessa áætlun?