fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Mér er sönn ánægja að því að upplýsa hv. þingmann og þá sem á hlýða að þessi áætlun er í samræmi við upphaflegt upplegg. Það kemur einfaldlega fram á bls. 35:
„Fjármálaáætlun byggir á febrúarspá bankans og ráðuneytið gerir ekki ráð fyrir því að forsendur áætlunarinnar verði uppfærðar miðað við næstu spá, þ.e. maíspána. Gengið er út frá því að fjárlagafrumvarp byggi á maíspánni og að við þinglega meðferð þess verði forsendur uppfærðar með ágústspánni.“
Þetta er því alveg í samræmi við upphaflegt upplegg þegar þessi fjármálaáætlun var tekin til meðferðar. Ég vek athygli hv. þingmanns á því að það er ekkert brugðið út af því verklagi sem var lagt upp með. Það verður síðan tekið tillit til maíspár Seðlabankans við gerð fjárlagafrumvarpsins í haust. Þannig er málið, rétt eins og gert var ráð fyrir í byrjun.