fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Það sem ég vil segja við hv. þm. Sigurjón Þórðarson er að þetta er ekki leikskóli. Þetta er ekki leikur. Við erum að tala um fjármálaáætlun. Hv. þingmaður kemur og segir: Heyrðu, ég vil bara staðfesta að það er ekkert að marka þessa fjármálaáætlun, því það er það sem hv. þingmaður er að segja. Þessi ríkisstjórn hóf sína vegferð með því að brjóta lög um opinber fjármál og maður hélt kannski að þar myndu menn láta staðar numið. En hv. þingmaður kemur hérna og segir okkur það: Já, ég veit, forsendurnar eru farnar en við ætlum að halda okkur við forsendurnar sem eru ekki lengur til staðar. Við sögðumst ætla að gera það, við ætlum að halda okkur við forsendur sem eru bara í einhverjum platheimi.
Virðulegur forseti. Þetta var ekki hugsunin með lögum um opinber fjármál, annars hefðu menn alveg getað sleppt því. Það sá enginn fyrir sér svona ríkisstjórnarmeirihluta þegar lögin um opinber fjármál voru samþykkt. (Forseti hringir.) Við förum fram á það að þessi fjármálaáætlun verði færð til raunveruleikans, uppfærð, þær forsendur sem eru ekki lengur til staðar (Forseti hringir.) fari út en þær sem við vitum að eru til staðar verði settar inn.