157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:24]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er mjög margt sem væri hægt að spyrja um hér og mig langar, þrátt fyrir að hv. þingmaður hafi gert tilraun til að svara hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni áðan, að reyna að kjarna aðeins áhyggjur okkar. Gott og vel ef hæstv. ríkisstjórn og meiri hluti fjárlaganefndar vilja ekki uppreikna áætlunina sem augljóslega er vitlaus og þau segja í raun og veru í nefndarálitinu sínu að sé röng, að forsendurnar séu farnar. En er hv. þm. Sigurjón Þórðarson þá ekki sammála eigin áliti, að miðað við þær forsendur sem þó eru taldar upp í nefndaráliti meiri hlutans sé ljóst að hallalaus fjárlög náist ekki 2027, ekki miðað við upptalningu á þeim breytum sem hafa orðið í forsendunum og hann sjálfur kvittar undir í nefndaráliti meiri hlutans?