fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Það er alveg ljóst að það er ekkert rangt við þessa fjármálaáætlun og þessari fullyrðingu vísa ég einfaldlega til heimahaganna. Það er hins vegar rétt að geta þess hvað varðar þróun útgjalda að þessi umræða um fjármálaáætlun — þarna kemur fram, eins og ég nefndi í ræðu minni, að við erum með töluliðaða stefnumörkun út frá ákveðnum forsendum. Þó svo það væri vilji til þess að reikna allt aftur út frá maíspánni, eins og mér heyrist að sé vilji hjá stjórnarandstöðunni, þá kom það fram í viðræðum við fjármálaráðuneytið að það tæki alla vega nokkrar vikur í viðbót. Við verðum einhvers staðar að hafa viðmiðunarpunkt og hann er út frá þessari forsendu, þ.e. spá Seðlabankans. Við ætlum síðan að nota maíspána þegar við gerum fjárlagafrumvarpið, (Forseti hringir.) það verður tekið tillit til þess, þannig að við fáum hallalaus fjárlög og ég vona svo sannarlega að hv. þingmaður fagni því með okkur.