157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:27]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er alveg ljóst að forsendurnar í fjármálaáætlun eru brostnar. Meiri hlutinn segir það í nefndarálitinu, það er algerlega skýrt. Hann telur meira að segja upp forsendurnar sem eru brostnar. Það er minni sparnaður vegna atvinnuleysistrygginga, þetta eru 1,2 milljarðar. Hærra atvinnuleysi og aukin útgjöld, þar eru áætlaðir 6–7 milljarðar. Lægri hagvöxtur og minni skatttekjur má áætla að séu 5–7 milljarðar. Áætluð afkoma varðandi verðbólgu og vaxtaáhrif er svona mínus 11–14. Þegar þetta er allt saman talið til, sem meiri hluti nefndarinnar telur upp í eigin áliti, eru þetta 16–22 milljarðar. Það að koma svo hér upp, virðulegur forseti, og halda því fram að það hafi ekkert breyst í áætluninni, ekkert breyst, hallalaus fjárlög standi, þegar þau telja sjálf upp í nefndaráliti sínu breytingar sem nema 20 milljörðum kr., eru galin vinnubrögð. (Forseti hringir.) Þetta eru gersamlega galin vinnubrögð