fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Það má vera að það sé framandi og galið fyrir hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar að ætla sér að reka ríkissjóð réttum megin við strikið en það er einmitt það sem er ætlun núverandi ríkisstjórnar. Ég held að menn ættu að taka þetta markmið og horfa á það með jákvæðari hætti en virðist vera gert hér í umræðunni. Hvað varðar þessa 1,2 milljarða kr., sem er alveg ljóst að munu verða umfram gjöld í Atvinnuleysistryggingasjóð, miðað við útreiknaða áætlun, þá er ágætt að setja þetta í samhengi við upphæð áætlunarinnar sem er 1.700 milljarðar. Þessir 1,2 milljarðar eru ekki prósent af heildaráætlun heldur kannski einn fimmtándi af prósenti, þannig að ætla að fara að taka heila áætlun upp út frá svona fráviki (Gripið fram í.)er ekki skynsamlegt. (Forseti hringir.) Það blasir við hverjum sem horfir á þessar tölur. (Gripið fram í: … miklu meira en það.)