157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:30]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og nefndarálitið sem mér finnst býsna rýrt.

Virðulegur forseti. Í umsögn fjármálaráðs segir m.a., með leyfi forseta:

„Vísitölutenging almannatrygginga ógnar sjálfbærni opinberra fjármála.

Framkvæmd stöðugleikareglu er ógagnsæ og óljóst er hvernig hún eigi að stuðla að jafnvægi í afkomu.

Óútfærðar afkomubætandi aðgerðir draga úr trúverðugleika.

Verðbólguvæntingar eru enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi.

Tilhneiging til víðtækra aðgerða við sértækum vanda grefur undan skilvirkni og sjálfbærni.

Lækkun skuldahlutfalls byggir á bjartsýnum forsendum um hagvöxt.

Afkomubati er hægfara og háður mikilli óvissu.

Mikil og falin áhætta getur verið fólgin í stofnun innviðafélags.“

Svona mætti lengi telja. Hvernig bregst meiri hluti hv. fjárlaganefndar við þessum ábendingum frá fjármálaráði?