fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Það er ekkert nýtt að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins sjái ofsjónum yfir greiðslum til elli- og lífeyrisþega eins og kom fram hér í ræðu hv. þingmanns (BHar: Ég var að lesa úr áliti fjármálaráðs. )en ég vil vekja athygli á því … — Er hægt að fá hljóð, frú forseti?
(Forseti (): Þingmaðurinn er með orðið.)
Ég vil vekja athygli á því að þær greiðslur sem um ræðir eru miklum mun minni heldur en sú hækkun sem fjármálaráð hefur miklar áhyggjur af og vitnað var til heldur en það sem hefur farið vegna nýlegra kjarasamninga til heilbrigðisstarfsfólks á örfáum heilbrigðisstofnunum. Það er ágætt að setja þetta í samhengi. Það er alveg ljóst að það er stefna þessarar ríkisstjórnar að ná fram hallalausum fjárlögum á næsta ári og ef það eru einhverjar breytingar í forsendum, eins og hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa nefnt, þá verður tekið tillit til þeirra við gerð fjárlagafrumvarpsins og það er verkefnið fram undan. (Forseti hringir.) Ég vona svo sannarlega að maður heyri jákvæðan tón frá stjórnarandstöðunni þegar er stefnt að hallalausum fjárlögum.(Gripið fram í.)