fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég bara komst ekki yfir að segja hvað mér finnst um þetta í andsvari mínu áðan. Ég var bara að lesa úr umsögn fjármálaráðs. Svarið við spurningunni sem ég bar fram til hv. þingmanns er raunverulega það að hv. meiri hluti í fjárlaganefnd bregst í engu við umsögn fjármálaráðs. Það er með engum hætti brugðist við þessari umsögn í nefndarálitinu. Eina sem er gert er að halda einhverju fram um að það sé stefnt að hallalausum fjárlögum. Fínt hjá ykkur, en hvernig á að gera það, hv. þingmaður? Því er ekki svarað. Og hvað hefur gerst síðan fjármálaráð sendi umsögn sína? Hagvaxtarhorfur hafa versnað, atvinnuleysi hefur aukist, allar forsendur sem byggt er á hafa brostið. Hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við því? Það á ekki að gera neitt.
Virðulegur forseti. Þetta er algjörlega ótæk vinna hjá hv. fjárlaganefnd. Það er óboðlegt að koma hér með svona fjármálaáætlun sem á að vera helsta plagg ríkisstjórnarinnar og við eigum öll að geta staðið á bak við. (Forseti hringir.) Þetta snýst um ríkisbúskapinn, þetta snýst um að ná hér niður vöxtum og verðbólgu. En það sem meiri hlutinn er að skila hér er núll, algjör falleinkunn.