157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:34]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Sigurjón Þórðarson) (Flf) (andsvar):

Forseti. Það svartnætti sem dregið er hér upp af stjórnarandstöðunni er ekki í samræmi við raunveruleikann. Það hefur komið hér fram að bætur atvinnuleysistrygginga munu að einhverju leyti aukast, um 1,2 milljarða, umfram það sem gert var ráð fyrir í þessari áætlun, en menn fara ekki að taka upp heila áætlun þegar það skeikar broti úr prósenti. Þetta er áætlun þar sem eru grófu línurnar, þar sem tölusett markmið ríkisstjórnarinnar koma fram. Nýjar spár — það verður tekið tillit til þeirra, það hefur margkomið fram hér í umræðunni, frú forseti. Það verður tekið tillit til þeirra við gerð fjárlagafrumvarpsins. Ég vona svo sannarlega að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar fari nú að taka þátt í þessu með okkur, að ná endum saman hvað varðar rekstur ríkisins. Það eru margvíslegar áætlanir og aðgerðir sem eru kynntar í áætluninni, m.a. hvað varðar fækkun ríkisstarfsmanna, sameiningu stofnana, (Forseti hringir.) þannig að mér finnst svona fulldökk mynd dregin hér upp af hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.