157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:35]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Við höfum verið að hlusta hér á framsögu í nefndaráliti um fjármálaáætlun þar sem meiri hlutinn skirrist við að taka mark á breyttum forsendum sem hafa verið reifaðar hér af stjórnarandstöðunni og viðurkenndar eru í áliti þeirra. Hallalaus fjárlög á næsta ári eru komin í vaskinn, frú forseti. Þau eru komin í vaskinn og ég myndi bara vilja fá heiðarlegt svar við því hvað meiri hlutinn ætlar að gera í því. Ef þau ætla að hækka skatta þá vil ég bara fá að heyra það. Ætlar þessi ríkisstjórn að stoppa upp í þetta gat sem fyrirsjáanlegt er með hækkun skatta? Ég vil fá svar við því hvaða skatta þau ætla að hækka og hvenær. Hvaða skatta ætlar ríkisstjórnin að hækka á fólkið í landinu til að stoppa upp í þetta fyrirsjáanlega gat sem við erum að horfa hér á og er augljóst?