fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Það er spurt á ný um breytta spá og breyttar forsendur og ég bara ítreka það sem ég hef sagt hér fyrr í umræðunni: Það er alveg ljóst, og kemur fram á bls. 35 í fjármálaáætluninni, að það er gert ráð fyrir því verklagi sem er viðhaft hér varðandi fjármálaáætlun. (Gripið fram í.) Það er gengið út frá þessari spá sem unnið er með. Menn eru ekki hér að vinna þetta eftir maíspá og endurreikna allt. En ég tek enn og aftur fram að það er gert ráð fyrir því að umrædd ný þjóðhagsspá verði notuð við gerð fjárlagafrumvarpsins. Hvað varðar skattana sem hv. þingmaður nefnir þá er hann greinilega áfjáður í einhverjar skattahækkanir. Það er auðvitað ein leið en ég tel að við eigum miklu frekar (Gripið fram í.)að fara yfir reksturinn eins og ríkisstjórnin er að tala um. Það er verið að ræða um hagræðingu, fækkun ríkisstarfsmanna. Það er sú leið sem er hér í fjármálaáætluninni og það er sú leið sem ég get rætt.