157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:39]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Sigurjón Þórðarson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Hvernig ætlar maður að komast til lands? Ég vil vekja athygli á því að staða íslenska ríkisins er ekkert afspyrnuslæm samanborið við önnur lönd þannig að það að bera þetta upp að við séum bara á heljarnöf og allt sé að farast eins og stjórnarandstaðan lætur í veðri vaka — það er hér áætlun sem byggist á því að fara áfram í vöxt, hagvöxt, og síðan hægar í útgjöldum en fyrri ríkisstjórn var vís með að fara í. Ef það er farið yfir söguna þá ætlum við að fara að hægja á útgjöldunum miðað við fyrri ríkisstjórn. Síðan á að fara í frekari hagræðingar. Þetta er sú leið sem við boðum í fjármálaáætluninni og það er sú leið sem við ætlum okkur að fara. En það er rétt að það verður fjárlagafrumvarp lagt fram í haust sem mun taka mið af nýrri þjóðhagsspá og þá verður bara að koma í ljós hvernig brugðist verður við. (Gripið fram í.)