157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:41]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Nú bið ég um aðstoð hæstv. forseta. Má ég minna á hvernig þessi ríkisstjórn byrjaði með fjármálaáætlun á síðasta þingi. Þá gekk stjórnarandstaðan út vegna þess að sú framsetning sem var á fjármálaáætlun var óboðleg. Það var samþykkt hér að reyna að taka málefnalega umræðu í fyrri umræðu um fjármálaáætlun vegna þess að fyrir lá skriflegt loforð um það að næst þegar fjármálaáætlun kæmi fram þá myndu koma þau gögn sem þingmenn þurfa á að halda til að taka málefnalega umræðu um fjármálaáætlun. Núna erum við með nefndarálit sem viðurkennir vissulega þann stóra og mikla vanda sem við erum stödd í: Forsendur fjármálaáætlunar eru brostnar. En hver eru viðbrögð meiri hluta fjárlaganefndar? Engin.

Virðulegur forseti. Það er ótækt annað en að umræðu um fjármálaáætlun verði frestað og ríkisstjórnin reikni þetta upp. Hægt er að taka þessa umræðu, mögulega á ákveðnum stubbi í ágúst sem við í Sjálfstæðisflokknum höfum alla vega farið fram á að verði í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem (Forseti hringir.) ráðherrar geta setið til svara um málefni þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Við gætum (Forseti hringir.) hæglega klárað fjármálaáætlun þá í ljósi þess að ríkisstjórnin virðist þurfa enn lengri tíma til að uppreikna hana.