fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og biðja starfsmenn leikskóla og leikskólabörn afsökunar á því að hafa notað samlíkinguna um leikskóla þegar ég talaði um meiri hluta ríkisstjórnarinnar því það er miklu betra ástand, sem betur fer, langtum betra ástand, á leikskólum þjóðarinnar. En það sem er sameiginlegt er þó það að það er eins og ríkisstjórnarmeirihlutinn líti á þetta sem leik. Lög um opinber fjármál eru til komin af ástæðum. Það er til þess að við getum tekið ákvarðanir út frá bestu mögulegu forsendum, til þess að við höfum einhvern fyrirsjáanleika og vöndum til verka. Meiri hlutinn svarar ekki grundvallarspurningunni, t.d. um varnartengd útgjöld eða hvernig hann gerir upp, af hverju tölur ríkisstjórnarinnar um afkomu ríkissjóðs eru allt öðruvísi en ríkisreiknings.
Virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Hér er viðurkennt að forsendurnar eru brostnar en menn ætla ekki í uppreikning.
Virðulegi forseti. Þetta er ekki boðlegt. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á þetta.