fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég skil þessa uppákomu hér hvað varðar athugasemd við fundarstjórn forseta sem hálfgerða uppgjöf við að ræða þetta mál sem hér er. Það er alveg ljóst að það sem var gert mikið veður af í aðdraganda þessarar umræðu, þ.e. 1,2 milljarðar á næsta ári í aukin útgjöld til atvinnuleysistrygginga, er óveruleg upphæð í hinu stóra samhengi. Eins og ég nefndi er þetta 1/17 úr prósenti og það raskar ekki þessari áætlun til fimm ára. Ef hv. þingmenn treysta sér ekki í málefnalega umræðu þá er það eins og það er. En það er ekki vegna þess að hér sé eitthvað sem er breytt. Það er nákvæmlega þannig að þessi umræða og þær forsendur sem hún er unnin út frá eru eins og fram kemur á bls. 35. Ég skora á hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins, og aðra sem gera athugasemd við það að þessi umræða haldi áfram á þessum forsendum, að fara nú aftur yfir fjármálaáætlunina, þá þingsályktunartillögu sem liggur hér fyrir og er til umræðu. Þessi umræða fer fram á nákvæmlega þeim forsendum eins og ætlunin var í byrjun.