157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:45]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem hér hafa stungið upp á því og beint því til forseta að þetta mál sé auðvitað ekki tækt til afgreiðslu hér vegna þess að það er augljóst og öllum augljóst að forsendur hafa breyst svo mikið að það er ekki hægt að ljúka umræðu um málið að svo stöddu. Best er að ríkisstjórnin taki þessa fjármálaáætlun til endurskoðunar og hún verði þá rædd á þingi í ágúst. Ég tek undir það.

Það er augljóst, frú forseti, að efnahagshorfur í nýrri þjóðhagsspá hafa versnað. Það er augljóst að lög um breytingar á atvinnuleysistryggingum breyta forsendum líka. Atvinnuleysi er meira en ráð var fyrir gert og atvinnuleysi verður meira en gert var ráð fyrir í upphafi framlagningar þessarar áætlunar. Þannig að forsendur eru svo breyttar að fjárlög næsta árs verða ekki hallalaus, þau verða 15 sinnum verri heldur en gert var ráð fyrir, þau verða mínus 15–20 milljarðar sem ekki var gert ráð fyrir. (Forseti hringir.) Er þá hægt að tala um þessa áætlun hér eins og þetta sé bara orðinn hlutur? Hv. þingmaður segir að við treystum okkur ekki í málefnalega umræðu. (Forseti hringir.) Meiri hlutinn treystir sér ekki til að leggja fram málefnalegt nefndarálit í þessu máli og reikna þetta upp á nýtt. Við viljum fá að vita: Hvaða skatta ætlar þessi ríkisstjórn að hækka til að stoppa upp í þetta gat?