fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég ætla aðeins að blanda mér í þessa umræðu. Við erum að ræða fjármálaáætlun til fimm ára. Hún er samþykkt einu sinni á ári og yfir árið geta ýmsar forsendur í spám breyst en Alþingi tekur ekki upp fjármálaáætlun í hvert einasta skipti. Spurningin sem vaknar nú: Er ástæða til að bíða með fjármálaáætlun í hvert skipti sem forsendur virðast eitthvað breytast? Þá þarf að meta hvort þetta séu einhverjar meiri háttar hamfarir — sem er ekki, heldur líklega bæði breytingar á tekju- og gjaldahlið. Það er mikilvægt að setjast yfir það áður en fjárlög eru undirbúin og lögð fyrir þingið í haust. En það að fresta umfjöllun um fjármálaáætlun ber með sér svona oftrú á þessum spám miðað við þær skýru meginforsendur sem liggja fyrir í fjármálaáætluninni. Já, það verður áskorun að leggja fram hallalaus fjárlög en það er engu að síður stefna ríkisstjórnarinnar og verður gert.