157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:48]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Sú sem hér stendur treystir sér vel til að ræða fjármálaáætlun en hún vill ræða hana á raunhæfum grunni. Og það er vandamálið, við erum ekki með hann hér. Ég óttast hreinlega að það að afgreiða fjármálaáætlun eins og hún liggur fyrir eftir meirihlutaálit standist ekki lög um opinber fjármál. Það er þess vegna sem ég beini því til hæstv. forseta að fresta þessari umræðu þar til búið er að reikna fjármálaáætlun upp. Þarf alltaf að reikna fjármálaáætlun þegar ný spá kemur? Nei, kannski ekki, það fer eftir því hvernig spáin er og hvaða forsendur eru að breytast. Þær forsendur sem liggja nú fyrir í nýrri spá Seðlabankans umbylta þessari fjármálaáætlun. Hefði þurft að fresta henni? Nei, ekki endilega, það eru nú liðnar þrjár vikur síðan þessi spá Seðlabankans kom fram. Það hefði verið hægt að endurreikna þetta og fjárlaganefnd hefði getað gert það í sínu nefndaráliti og þá hefðum við getað verið að ræða raunhæfari niðurstöðu. En í ljósi þess að það var ekki gert þá finnst mér eðlilegt að beina því til hæstv. forseta að þessari umræðu verði frestað þar til þau gögn liggja fyrir.