fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Það er áhugavert að hér koma stjórnarliðar og gera lítið úr því sem þeir gera í sjálfu sér ekki lítið úr í áliti meiri hlutans, að forsendur eru brostnar. Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að það á að byggja fjárlög á fjármálaáætlun. Það er alveg ástæða fyrir því að meiri hlutinn vísar til þess að forsendur séu brostnar. Það er vegna þess að þær eru brostnar. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson kemur og segir að þetta snúist nú bara um það að sparnaðurinn sé minni út af meðferð meiri hlutans varðandi styttingu atvinnuleysisbóta. Það er ekki þannig. Það er bæði að hagvöxturinn er minni, atvinnuleysi er meira. Þetta eru stórar upphæðir. Ég ætla ekki að fara í alla veikleikana sem eru í fjármálaáætlun en vek athygli á því að álitsgerð fjármálaráðs er mjög harðorð og það er ekkert tillit tekið til hennar. En aðalatriðið er þetta: Við erum ekki að ræða þetta út frá bestu mögulegu upplýsingum. (Forseti hringir.) Það er fyrirsláttur að það sé ekki hægt að reikna þetta upp. Ef þeir hefðu ákveðið að reikna áætlunina upp þá værum við með það núna því það er langt síðan þetta kom. (Forseti hringir.) En ef menn vilja hafa stubb og ræða þetta þar þá getum við gert það. En ríkisstjórnarmeirihlutinn vill fela raunverulega stöðu ríkisfjármála.