fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Ég tek undir með hv. þingmönnum hér að það væri meiri bragur á því, það væri merki um vönduð vinnubrögð og að við vildum vanda til verka við gerð fjármálaáætlunar, að þessu máli yrði vísað aftur til baka, það yrði unnið betur, forsendur uppfærðar, tölurnar uppfærðar og við myndum taka þetta fyrir hér á þingstubbi núna í ágúst og ræða þá uppfærða fjármálaáætlun í stað þess að vera hér að ræða áætlun sem allir vita og allir sjá að stenst ekki, virðulegur forseti. Það er lágmarkskrafa þegar verið er að ræða fjármálaáætlun að við séum með réttar og uppfærðar tölur fyrir framan okkur og sérstaklega þegar hv. meiri hluti er meira að segja búinn að viðurkenna að forsendur séu brostnar. Það er ekkert því til fyrirstöðu að taka málið til baka, vinna það betur og uppfæra áætlunina, virðulegur forseti.