157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:54]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Það sætir furðu minni þessi tregða meiri hlutans til að afgreiða fjármálaáætlun á grundvelli traustra forsenda og gagna eins og skilyrt er í 8. gr. laga um opinber fjármál heldur er þráast við að leiðrétta forsendurnar og enginn vilji til þess að byggja á sem áreiðanlegustum upplýsingum. Það á auðvitað að vera hlutverkið vegna þess að hvers vegna gerum við fjármálaáætlun eða rekstraráætlanir? Það er til þess að geta stýrt rekstrinum, brugðist við, tekið ákvarðanir um gjöld og rekstrarleg atriði.

Ég vil líka setja þetta í samhengi við verðbólguvæntingar aðila á markaði sem eru gríðarlega háar. Ástæðan fyrir því er að það skortir tiltrú markaðarins á aðgerðum stjórnvalda til að ná niður verðbólgunni og lækka þar með vexti. Það er auðvitað ömurleg leið að því markmiði að þráast við að uppfæra forsendur fjármálaáætlunar líkt og meiri hlutinn virðist vera að gera hér.