157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[11:55]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Það er sorglegt að verða vitni að vinnubrögðum meiri hlutans í þessu mikilvæga grundvallarmáli. Af því að hv. þingmenn stjórnarliðsins tala hér eins og allt sé í blóma þá ætla ég aðeins að vitna í hæstv. fjármálaráðherra. Það segir í frétt á Vísi frá 7. júní 2026, með leyfi forseta:

„Fjármálaráðherra segir óhjákvæmilegt að atvinnuleysi aukist vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar sem snúa að því að ná tökum á þensluverðbólgu. Hann viðurkennir að betur mætti ganga í efnahagsmálum. Þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við í árslok 2024 voru vextir byrjaðir að lækka en í dag fara vextir hækkandi. Erfiðlega gengur að ná tökum á verðbólgunni, atvinnuleysi eykst og fréttir voru fluttar af fjöldauppsögnum í maí. Kjarasamningar losna mögulega í haust og óvíst hvort að boðuð hallalaus fjárlög á næsta ári gangi eftir. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, fór yfir stöðuna í efnahagsmálum á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.“

Þáttastjórnandinn spyr: „Þú vonaðir kannski að við værum á betri stað?“

„„Já þetta hljómar ekki vel þegar þú ferð yfir þetta eina og hálfa ár. Það er alls ekki eins og ég sé starfi mínu vaxinn en þetta er alveg rétt hjá þér. Þetta er staðan,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra.“

Þetta segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Þetta eru ekki orð stjórnarandstöðunnar, þetta eru orð hæstv. fjármálaráðherra. Þó svo að hér séu menn í salnum, hv. þm. Sigurjón Þórðarson og Dagur B. Eggertsson, sem sjá ekkert nema blóm í haga í efnahagsmálum þá hvet ég þá til að fara og tala við hæstv. fjármálaráðherra sem fór yfir stöðuna eftir þetta eina og hálfa ár ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Hæstv. fjármálaráðherra er alveg skýr í þessu. Ég er ekki að lesa upp úr ræðum stjórnarandstæðinga. Ég er ekki að lesa upp úr bloggi. Virðulegi forseti, ég er að lesa upp úr ummælum hæstv. fjármálaráðherra.

Svo ætla ég núna, virðulegi forseti, aðeins að fara yfir, af því þetta er fjármálaáætlun, og aftur, hún er tilkomin vegna laga sem mörkuðu tímamót, lög um opinber fjármál. Markmið laganna var að vanda betur umgjörð opinberra fjármála. Full samstaða var um málið hér á hinu háttvirta Alþingi og allir sammála um það að eftir þessum lögum skyldi starfa vegna þess að þá myndum við ná betri tökum á efnahagsmálunum og værum að gera svipaða hluti og þeir sem gera þetta best og við viljum alla jafna bera okkur saman við.

Virðulegi forseti. Einn þáttur í lögunum, gríðarlega mikilvægur, var að stofna sérfræðingaráð, fjármálaráð, sem átti að koma með álitsgerð í hvert skipti sem fjármálaáætlun kemur inn. Þetta er að erlendri fyrirmynd og í sumum löndum sem menn vitna mikið til þegar þeir eru að reyna að troða okkur í Evrópusambandið þá er það þannig að þegar fjármálaráð gefur línu og fer eitthvað þá er það í það minnsta alger venja og hefð, ég veit ekki hvort það sé lagasett, að fara nákvæmlega eftir því. Þarna eru þrír sérfræðingar í hagfræði sem skrifa álitsgerð. Auðvitað ætla ég ekki að lesa hana alla, virðulegur forseti, en ég ætla að lesa helstu þættina sem koma fram á bls. 6 undir kaflaheitinu Helstu ábendingar og ályktanir og hefst nú lesturinn, virðulegur forseti:

Fyrst jákvæður punktur, eini jákvæði punkturinn: „Ekki kvikað frá markmiði um hallalaus fjárlög“, en við skulum ræða það aðeins á eftir.

Þá kemur, virðulegi forseti: „Vísitölutenging almannatrygginga ógnar sjálfbærni opinberra fjármála.“ Þetta kemur frá sérfræðingunum. Hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við þessu? Hvernig gerir hann það? Meiri hlutinn bregst bara ekki við þessu.

Næsti punktur: „Vísitölutenging almannatrygginga kallar á endurskoðun útgjaldahámarks.“

Virðulegur forseti, hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við þessum punkti? Svarið er að meiri hluti fjárlaganefndar bregst ekki við þessum punkti.

Þá kemur: „Framkvæmd stöðugleikareglu er ógagnsæ og óljóst er hvernig hún eigi að stuðla að jafnvægi í afkomu.“

Virðulegur forseti. Hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við þessum punkti? Svarið er að meiri hlutinn bregst ekki við þessum punkti frekar en hinum punktunum.

Þá kemur, virðulegi forseti: „Óútfærðar afkomubætandi aðgerðir draga úr trúverðugleika.“

Virðulegi forseti. Hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við þessum punkti? Stutta svarið er að meiri hluti fjárlaganefndar bregst ekki við þessum punkti.

Þá kemur, virðulegur forseti: „Óljóst hvers vegna búast megi við viðsnúningi í þróun framleiðni.“

Virðulegi forseti. Hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við þessum punkti? Nú, svarið er að meiri hluti fjárlaganefndar bregst ekki við þessum punkti.

Virðulegi forseti. Þá kemur: „Verðbólguvæntingar eru enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi.“ Þetta er mjög mikilvægur punktur, augljóslega, og varðar almenning í landinu og fyrirtækin í landinu. Og hvernig bregst, virðulegi forseti, meiri hluti fjárlaganefndar við þessum punkti? Svarið er að meiri hluti fjárlaganefndar bara bregst ekki við þessum punkti.

Þá kemur, með leyfi forseta: „Tilhneiging til víðtækra aðgerða við sértækum vanda grefur undan skilvirkni og sjálfbærni.“

Virðulegi forseti. Hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við þessum punkti? Nú, svarið er að meiri hluti fjárlaganefndar bregst ekki við þessum punkti.

Þá kemur, virðulegi forseti: „Lækkun skuldahlutfalls byggir á bjartsýnum forsendum um hagvöxt.“

Virðulegi forseti. Hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við þessum punkti? Meiri hlutinn í fjárlaganefnd bregst ekki við honum en hins vegar liggur það fyrir að þetta er samt strax búið að raungerast vegna þess að spá Seðlabankans gerir ráð fyrir minni hagvexti heldur en fjármálaáætlun gerði ráð fyrir. En það er heldur ekkert brugðist við því, virðulegi forseti.

Virðulegur forseti. Þá kemur, með leyfi forseta: „Afkomubati er hægfara og háður mikilli óvissu.“ Og hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við þessu? Stutta svarið er að hann bregst ekki við þessu.

Þá förum við, virðulegur forseti, í næsta punkt: „Varhugavert er að treysta á hagfelldar efnahagsforsendur.“ Hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við þessu? Stutta svarið er að meiri hluti fjárlaganefndar bregst ekki við þessum punkti en hins vegar liggur það alveg fyrir að hagfelldu efnahagsforsendurnar munu ekki standast. Það eru engar líkur á því, eins og bæði fjármálaráð og fjármálaráðherra viðurkenna og benda á.

Þá kemur, virðulegur forseti: „Skortur á gagnsæi um forsendur launa- og verðlagsþróunar draga úr trúverðugleika.“

Virðulegi forseti. Hvernig bregst hv. fjárlaganefnd, þ.e. meiri hlutinn, við þessu? Hv. fjárlaganefnd eða meiri hluti hennar bregst ekki við þessu.

Því miður er þetta ekki alveg búið. Síðan kemur, með leyfi forseta: „Endurlánum fylgir freistnivandi.“ Hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við þessu? Þetta tengist því að menn séu að færa til úr A1-hluta og þá fjármagnar lánasjóður innviðaverkefni með endurlánum frekar en að viðkomandi aðilar fjármagni sjálfir á markaði.** Þetta tengist öðru máli sem auðvitað tengist þessu nákvæmlega. Stutta svarið er það að meiri hlutinn bregst ekki við þessu og meiri hluti fjárlaganefndar hefur skrifað það út sérstaklega að hann misskilji málið um innviðafélagið.

Svo að lokum, virðulegi forseti: „Mikil og falin áhætta getur verið fólgin í stofnun innviðafélags.“ Hvernig bregst meiri hluti fjárlaganefndar við því? Stutta svarið er að það mál er algerlega vanbúið, meiri hlutinn misskildi eigið mál og veit í rauninni ekki hvað á að gera með það félag. Það er algjörlega óljóst þrátt fyrir að kallað hafi verið eftir því í þingsal vegna þess að meiri hluti fjárlaganefndar fór þá leið að ræða þetta ekki í þingnefnd sem er með miklum ólíkindum. Þetta væri kannski bara allt í lagi ef þetta sneri ekki að grundvallarhagsmunum þjóðarinnar.

Virðulegi forseti. Þetta eru 14 punktar sem komu frá fjármálaráði; fagráði sérfræðinga sem eiga að greina fjármálaáætlunina. Hv. meiri hluti í fjárlaganefnd bara gæti ekki verið meira sama.

Það sem er búið að gerast, virðulegi forseti, er að þessi fjármálaáætlun — og ég ætla aðeins að rifja upp hvað fjármálaáætlun er. Hún á að vera trúverðugur grunnur fjárlaga. Hún á að byggja á traustum forsendum, gagnsæi, varfærni og ábyrgri hagstjórn. En nú liggur það fyrir að forsendurnar eru brostnar en engar breytingar eru gerðar á áætluninni. Og, virðulegi forseti, það er ekki ábyrg hagstjórn. Það er óskhyggja. Og hvað hefur breyst, virðulegi forseti, frá því að áætlunin var lögð fram? Það eru þrjú stór atriði; hagvöxtur er minni en áætlanir gerðu ráð fyrir, atvinnuleysi er meira en lagt var til grundvallar og svo er áætlaður sparnaður vegna styttingar atvinnuleysisbóta minni vegna breytinga sem gerðar voru á frumvarpinu í meðförum Alþingis. Þetta þýðir lakari afkoma ríkissjóðs. Minni hagvöxtur þýðir veikari tekjugrunnur. Meira atvinnuleysi þýðir aukin útgjöld og minni sparnaður þýðir að afkoman versnar strax miðað við það sem fjármálaáætlun byggði á.

Ef við förum aðeins í hvað þetta kostar, virðulegi forseti, þá var samkvæmt fjármálaáætlun gert ráð fyrir að hagvöxtur 2027 yrði 2,2–2,4%. Ný spá Seðlabankans segir að þetta sé 1,8% þannig að það munar þarna 0,4–0,6%. Það er mikið, virðulegur forseti, það er mjög mikið. Atvinnuleysi er hærra en áður var áætlað eins og hæstv. fjármálaráðherra vitnaði til; hann vitnaði bæði til hagvaxtarins og atvinnuleysis í viðtali á Sprengisandi. Þetta þýðir að útgjöld ríkissjóðs bara út af atvinnuleysisstiginu geta verið 6,3–7 milljörðum meiri. Við erum búin að taka út fyrirhugaðan afgang í fjárlögunum bara með því að vera með minni sparnað út af styttingu atvinnuleysisbótanna en síðan eigum við eftir að reikna út hvaða áhrif breyttur hagvöxtur hefur.

Virðulegur forseti. Fjármálaáætlun byggist á ákveðnum lögbundnum grunngildum; sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi. Í 8. gr. laganna segir að stefnumörkun í opinberum fjármálum skuli byggjast á traustum forsendum og gögnum. Traustum forsendum og gögnum, virðulegi forseti. Þegar liggur fyrir að hagvöxtur er minni, atvinnuleysi meira og útgjöld eru hærri en áður var gert ráð fyrir þá verður auðvitað að uppfæra myndina. Það er nefnilega ekki nóg að fjármálaáætlun líti vel út á blaði, hún verður að standast raunveruleikann — ekki það að þessi fjármálaáætlun líti sérstaklega vel út á blaði. Þetta er bara nákvæmlega eins, virðulegi forseti, og ef fjölskylda væri að fara í frí, búin að ákveða það og búin að gera ráðstafanir, taka frá fjármuni til að nýta í frí og síðan bara breytast allar forsendur. Flugið er miklu dýrara, gistingin er dýrari, kostnaðarhækkanir erlendis og fjölskyldan ákveður bara að líta ekki til þess. Auðvitað myndi engin fjölskylda gera það. Þetta er sambærilegt við að reka fyrirtæki; þú gerir þínar áætlanir og síðan bara breytist eitthvað. Segjum bara að fyrirtækið sé að flytja inn bíla og innkaupsverð bílanna hækki. Þá verður auðvitað að breyta forsendunum, að endurgera áætlunina. Til þess er leikurinn gerður.

Fjármálaáætlun er ekki einhver samkvæmisleikur hv. alþingismanna, þetta er ekki þannig. Þetta er til þess að vinna hlutina eins vel og mögulegt er þegar kemur að hagstjórn lýðveldisins. Eitt af því sem skiptir máli í þessu er að menn skoði alla hluti vel, byggi þetta á traustum grunni og þeir aðilar, það eru eiginlega allir, sem þetta hefur áhrif á hjá þjóðinni viti að verið sé að vinna með bestu mögulegu upplýsingarnar, gera áætlanir út frá traustum forsendum og að það sé eins mikill fyrirsjáanleiki og mögulegt er. Það er með ólíkindum að meiri hlutinn viðurkennir þetta — eða ég segi að það sé ekki með ólíkindum — en gerir svo ekki neitt. Ég vísa í bls. 35 þar sem segir að við ætluðum aldrei að gera neitt með að uppfæra áætlanir.

Virðulegur forseti. Hvað hefði gerst ef það hefðu komið nýir Reykjaneseldar eða Katla hefði farið að gjósa? Menn vísa í bls. 35 og segja bara: Við ætluðum bara aldrei að gera neitt með þetta. Spurningin er: Til hvers eigum við að standa í þessu?

Ég hef ekkert farið neitt hér í veikleika sem eru til staðar en ég vek athygli á því — af því að við erum bara að reyna að komast að aðalatriði máls sem er þetta: Að menn uppfæri þetta, sömuleiðis að þeir taki tillit til þess hvað fjármálaráð segir, því það að taka ekki tillit til fjármálaráðs er í besta falli óskynsamlegt, virðulegi forseti.

En ég vek athygli á því að við ætlum að ná hér markmiðum, ríkisstjórnin ætlar að ná hér markmiðum um að setja 1,5% af vergri landsframleiðslu í varnarmál. Við erum búin að spyrja núna síðan í nóvember um þá áætlun og við fengum svar í gær við síendurteknum spurningum og stutta svarið er: Við ætlum ekki að segja ykkur frá því. Við fengum í fyrradag svar við spurningunni sem var sömuleiðis frá því í nóvember um hvernig tekjuafkoma væri á árinu 2025. Það kemur í ljós að hún er 83 milljörðum betri, það var gert ráð fyrir 60 milljarða halla. Það hefði verið afgangur ef ekki hefðu komið til fjögur fjáraukalög, við höfum ekki náð almennilega að skoða útgjöldin þar. Það er margt sem kallar á spurningar. En ef fjáraukalög hæstv. ríkisstjórnar hefðu ekki komið til þá hefði verið afgangur á árinu 2025. Við höfum sömuleiðis spurt, vegna þess að það fer ekki saman, framsetning ríkisstjórnarinnar í sínum áróðursmyndböndum og öðru slíku, afkomu ríkissjóðs og hvað ríkisreikningur segir um. Við erum búin að bíða mánuðum saman eftir þessum upplýsingum — engin svör.

Virðulegur forseti. Ég get lofað hv. stjórnarliðum því að þeir verða ekki til eilífðarnóns í ríkisstjórn. Reyndar held ég að það sé nokkuð ljóst að þeir munu allir reyna að koma okkur inn í Evrópusambandið og koma sér til Brussel þegar þessu kjörtímabili er lokið. Það kæmi mér verulega á óvart ef þeir aðilar sem voru með þessar stóru yfirlýsingar fyrir kosningar ætla að bjóða sig fram aftur. En ef þeir gera það, virðulegi forseti, þá verða þeir í stjórnarandstöðu. Þá eru þeir búnir að skapa það fordæmi að gögnum sem hv. þingmenn eiga rétt á til að vinna vinnuna sína er haldið leyndum fyrir hv. þingmönnum og þar af leiðandi þjóðinni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur brotið blað í þingsögunni með því að láta hv. þingmenn ekki fá þær upplýsingar sem hv. þingmenn verða að fá til að sinna sínu starfi. Þetta hefur ekkert að gera með núverandi stjórnarandstöðu. Þetta hefur að gera með virðingu fyrir lýðræðinu, þinginu og þjóðinni. Þegar hæstv. ríkisstjórn og hv. þingmenn í stjórnarmeirihlutanum láta það yfir sig ganga, því að þetta gengur yfir þá líka, að koma ekki með upplýsingar sem eru fullkomlega sjálfsagðar þá er ekki hægt að draga aðra ályktun, virðulegi forseti, en að það sé verið að fela upplýsingar frá þingi og þjóð.

Ég vek athygli á því hverjar spurningarnar eru. Það tók marga mánuði að fá uppfært hverjar tekjurnar voru árið 2025. Af hverju? Vegna þess að stjórnarliðar vilja reyna að draga þá mynd upp að það ár hafi verið eitthvað hræðilegt og að þau hafi tekið við svo erfiðu búi. Það kemur í ljós að ef það hefðu ekki komið fjáraukalög ríkisstjórnarinnar, þessi fjögur fjáraukalög, þá hefði verið afgangur á því ári sem hefði gert það að verkum að það væri hægur vandi að fá afgang á þessu ári en við vitum hvernig það fór. Það er þessi sjálfsagða spurning að fá að vita hvernig stendur á því að niðurstaða ríkisstjórnarinnar í áróðursmyndböndum sínum er allt önnur heldur en í ríkisreikningi. Engin svör.

Ríkisstjórnin er búin að segja: Við ætlum að fara upp í 1,5% af vergri landsframleiðslu, sem er, ef ég man rétt, um 80 milljarðar kr., í varnartengd útgjöld. Það væri eitthvað að þingmönnum ef þeir myndu ekki spyrja: Já ókei, hvernig lítur þetta út? Get ég fengið þetta sundurgreint? Svarið frá ríkisstjórninni, það er búið að ganga á þau á hverjum einasta fundi fjárlaganefndar, held ég, síðan í nóvember, er: Þetta kemur ykkur ekki við, þið munið ekki fá þetta.

Virðulegi forseti. Það er af ótrúlega mörgu að taka þegar kemur að þessari fjármálaáætlun. En við erum bara á þeim stað að við viljum að þetta sé unnið eins og lög gera ráð fyrir á traustum grunni. Hallalaus fjárlög 2027 er gott markmið en það verður að sýna hvernig. Lánsfjárjöfnuðurinn sýnir að staðan er veikari og hann lýgur ekki. Á árinu 2027, sama ár og stefnt er að hallalausum fjárlögum, er áætlað að skuldir A-hluta hins opinbera aukist um nærri 100 milljarða kr. með teknu tilliti til verðbóta. Það er ekki hægt að tala um hallalaus fjárlög og lækkun skulda án þess að horfa á lánsfjárjöfnuðinn og -þörfina. Lánsfjárjöfnuður sýnir bara hvort þú skuldar meira eða minna. En þetta gerir meiri hluti fjárlaganefndar ekkert með.

Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að þetta er ekki aðeins gagnrýni stjórnarandstöðu. Eins og ég nefndi varar fjármálaráð við mörgu, eins og að vísitölutenging almannatrygginga gæti skapað misræmi milli útgjalda og tekjuöflunargetu hins opinbera. Einnig benti það á að útgjaldasvigrúmið sem áður var talið til staðar sé ekki lengur til staðar og endurskoða þurfi útgjaldaþakið til lækkunar. Seðlabankinn hefur sömuleiðis varað við því að breytingar á bótakerfinu geti aukið verðbólguþrýsting og dregið úr hvata til atvinnuþátttöku. Þetta eru alvarlegar, faglegar athugasemdir. Þetta er ekki pólitík, þetta eru alvarlegar, faglegar athugasemdir. Þegar bæði fjármálaráð og Seðlabanki vara við afleiðingum ákvarðana stjórnvalda á ríkisfjármál, verðbólgu og vinnumarkað þá getur ábyrg ríkisstjórn ekki látið eins og ekkert hafi gerst. Það getur ábyrg ríkisstjórn ekki gert.

Virðulegi forseti. Það er það sem ríkisstjórnin er að gera. Hér ættum við, og það var hugmyndin með lögum um opinber fjármál, að ræða hluti sem eru augljósir veikleikar eins og þegar kemur að heilbrigðismálum, örorku og endurhæfingu og hvernig aldurssamsetningin er að breytast. Hún er hagstæð núna en hún verður ekki endalaust. Hún er mun hagstæðari en í samanburðarlöndunum. Það er lægra hlutfall íbúa sem er eldri en 65 ára og Ísland hefur verið undir meðaltali Norðurlandanna á því tímabili sem fjallað er um. Við ættum þess vegna að hafa betri stöðu, virðulegi forseti, bæði til að halda heilbrigðis- og lífeyrisútgjöldum í skefjum en sú staða mun breytast. Við í minnihlutaálitinu vísum til þess að hlutfall 65 ára og eldri af fólkinu á aldrinum 15–64 ára verður tæplega 40% árið 2050 og 55% árið 2070. Þá verða auðvitað miklu færri hlutfallslega á vinnualdri til að standa undir samneyslunni. Núna erum við hins vegar á þeim stað, eins og Landspítalinn hefur bent á, að við erum að auka mjög kostnaðinn í heilbrigðisútgjöldunum, miklu meira heldur en aðrar þjóðir, en það er ekki hægt að skýra það með breyttri aldurssamsetningu því það kemur seinna. Þetta eru mál sem við eigum að ræða þegar kemur að fjármálaáætlun. Við eigum að líta til lengri tíma og huga að framtíðinni. Þess vegna var lögum um opinber fjármál breytt þannig að menn gætu litið til lengri tíma og væru skyldugir til að gera það. En þessi ríkisstjórn, henni er bara nákvæmlega sama. Þeir koma hér hreint og klárt fram og segja: Já, já, þessar forsendur eru allar farnar en við ætlum bara að láta eins og ekkert sé. Svarið er: Lestu bls. 35.

Hv. þm. Karl Gauti Hjaltason var með ágætis samlíkingu þegar hann spurði hv. þm. Sigurjón Þórðarson: Hvernig ætlar þú að komast í land því þú ert augljóslega ekki með nógu mikið bensín á tanknum þegar þú ferð í túrinn? Það er staðan. Það er ágætis samlíking. En þetta er ekki samkvæmisleikur, virðulegi forseti. Þetta er fjármálaáætlun. Það er í engu brugðist við 14 athugasemdum sem komu fram í álitsgerð fjármálaráðs og það er ekki miðað við raunstöðu, raunveruleikann, heldur er þess í stað miðað við forsendur sem eru brostnar og viðurkennt er af öllum að eru brostnar.