157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[12:25]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirtaksgóða ræðu og ég veit að ég og hv. þingmaður erum á svipuðum stað varðandi þessa fjármálaáætlun og deilum þeirri skoðun að það sé verulega sérstakt að koma hér með fjármálaáætlun sem meiri hluti nefndarinnar segir beinlínis í nefndaráliti sínu að sé röng. Að tala svo um að þetta séu svo litlar upphæðir að þetta skipti engu máli, að 1,2 milljarðar skipti engu máli, eins og hv. þm. Sigurjón Þórðarson kom hér inn á þegar verið var að tala um að sparnaður vegna atvinnuleysistrygginga væri 1,2 milljarðar og það væri svo lítið í stóra samhenginu að það tæki því ekki að uppfæra áætlunina. (Gripið fram í.) Ég ætla að benda hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni á það, af því að hann er hér í þingsal að gjamma fram í, að áætluð niðurstaða ársins 2027 er 1,1 milljarður í plús, og hvað er það þá? Ef hitt skiptir engu máli, hver er þá raunverulega niðurstaðan?

En mig langar að spyrja hv. þingmann: Ég hjó eftir því sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson sagði, og það kemur reyndar líka fram í nefndaráliti meiri hlutans, um framleiðnivöxtinn. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson talaði um það hér áðan að aukinn framleiðnivöxtur væri lykilþáttur í hagvexti. En nú er hagvöxtur að fara niður, virðulegur forseti. Hann er að fara niður úr 2,2% í 1,8% á næsta ári. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann geti fundið það út hvernig framleiðnivöxtur á að aukast á sama tíma og hagvöxtur fer niður.