157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[12:28]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Ég hef svo sem ekki mörgu við það að bæta sem hv. þingmaður vísaði til þegar hann fór yfir hvernig meiri hlutinn nálgast þetta en meiri hlutinn — það er skrifað út í nefndarálitinu að hagvöxtur muni lækka og atvinnuleysi aukast en hamast er á því að sparnaðurinn hafi bara verið minnkaður um 1,2 milljarða, sem er að vísu nóg til að taka afganginn á næsta ári. En látum það liggja á milli hluta.

Hv. þingmaður spyr hér um mjög mikilvægan hlut sem snýr að framleiðni, en hún er ein af forsendunum í þessari fjármálaáætlun. Þetta er eitt af því sem fjármálaráð bendir á. Í áliti þess segir í upphafskafla, með leyfi forseta: „Óljóst [er] hvers vegna búast megi við viðsnúningi í þróun framleiðni.“ Og aftur: „Í hagspá þeirri sem liggur til grundvallar áætluninni er byggt á forsendum um mikinn framleiðnivöxt án þess að slíkt sé rökstutt með gögnum og erfitt að sjá hvað eigi að drífa hann. Fjármálaráð vill enn og aftur leggja áherslu á að stjórnvöld hugi að grunngildum um varfærni og gagnsæi í stefnumörkun sinni.“ Þetta segir fjármálaráð, faglega ráðið.

Hv. þingmaður spyr mig hvort ég sjái þetta einhvers staðar í þessari fjármálaáætlun eða í nefndaráliti meiri hlutans. Nei. En ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að ég hélt að meiri hluti fjárlaganefndar myndi taka ábendingar fjármálaráðs alvarlega og reyna að koma til móts við þær. En þeir gera það í engu, nákvæmlega í engu.