fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er ekkert mál fyrir mig að gera það. Ég tek sömuleiðis undir þakkir um samstarfið því að mér hefur fundist hv. þingmaður stýra nefndinni prýðilega, sýna lipurð og ekkert út á það að setja, nema — nú þekki ég þessi mál nokkuð, ég er búinn að vera formaður og varaformaður í þingnefndinni og ég er búinn að vera í stjórnarandstöðu. Ég kom hérna inn 2003, var varaþingmaður þar á undan — það er ótrúlega ábyrgðarlaust að ræða ekki þær athugasemdir sem komið hafa fram frá fagaðilum og reyna að koma til móts við þær.
Hv. þingmaður, ég vek athygli á því að þetta snýst ekki um kjarabætur eldri borgara. Það kom fram meira að segja hjá Öryrkjabandalaginu og svo sannarlega hjá fjármálaráði og öllum aðilum að hérna er verið að búa til sjálfvirkni. Það er ekki verið að hjálpa þeim sem minnst hafa. Við gerðum það í tíð síðustu ríkisstjórna, bættum stórlega hag þeirra sem minnst hafa. Það hefur verið okkar nálgun en fjármálaráð og allir benda á það að það er verið að útvatna þetta og það er ekki verið að hjálpa þeim sem þyrftu á því að halda. Við erum að búa til sjálfvirkni sem mun aldrei fara vel.
Þegar hv. þingmaður talaði um fyrri ríkisstjórn, ég var nú í henni, þá voru aðeins öðruvísi aðstæður, Covid. Ég vona að við lendum ekki í neinu verra heldur en því. Það kostaði gríðarlega fjármuni. Sömuleiðis Reykjaneseldar. Hér eru menn alveg komnir fyrir vind með þetta. Hv. þingmaður segir: Við ættum að vinna þetta saman. Já, gerum það en við verðum að fá upplýsingar. Upplýsingum er haldið frá okkur. Það er ekki bara það að menn séu ekki að reikna þetta upp heldur fór ég yfir spurningar sem ég er búinn að endurtaka og bóka á hverjum einasta fundi, sem ég og aðrir stjórnarandstæðingar og allir hv. þingmenn eiga rétt á og reyndar þjóðin líka, en þeir veita ekki þessar upplýsingar. Það er grafalvarlegt mál, virðulegi forseti, grafalvarlegt mál.