fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og tek undir að samstarf okkar í nefndinni hefur verið ánægjulegt og uppbyggilegt og ekkert út á það að setja. En hv. þingmaður talaði hér um hlut sem skiptir mjög miklu máli. Við erum sammála um markmiðið og til þess breyttum við lögunum, til þess að auka virkni, en tölur benda hins vegar til þess að það sé ekki að ganga eftir og kostnaðurinn er að aukast gríðarlega mikið. Þetta er akkúrat mál sem við eigum að vinna saman að, ég held að það sé þverpólitísk samstaða um það, en við erum ekki að því vegna þess að við erum ekki með upplýsingar sem við þurfum, að vísu ágætar í því máli vegna þess að ég hef verið með fyrirspurnir um málið sem ég hef fengið svör við og get farið í það í seinni ræðum. Ég hef augljóslega ekki verið nógu skýr, en þegar við erum að tala um þingstubbinn þá hefur það svo sannarlega verið áhersla okkar að ræða Evrópumálin, eðlilega. Það er svolítið skrýtið að gera það ekki í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef ríkisstjórnin eða fjármála- og efnahagsráðuneytið hefði strax farið í það að endurreikna þetta þá værum við núna með uppreiknaða fjármálaáætlun. Við höfum því sagt: Ókei, gott og vel. Ef við gefum okkur það að það hafi ekki verið farið í þá vinnu þá skulum við bara gefa svigrúm til þess og við skulum ræða þetta, innviðafélagið og samgönguáætlun á þessum þingstubbi. Innviðafélagið er ekki tilbúið og ég sé ekki á hvaða handahlaupum við ættum að laga það milli umræðna. Það myndi ekki skipta neinu máli hvort það væri samþykkt í ágúst eða um miðjan júní fyrir utan það að væntanlega þarf að gera breytingar á ýmsum öðrum lögum ef það á að virka sem skyldi. Ég er því bara sammála hv. þingmanni. Ég vona að við getum náð samstöðu um að vera með þingstubb til að ræða Evrópumálin og taka þetta í leiðinni. Við þurfum auðvitað að gera það, sem og innviðafélagið, því að þetta eru raunverulegar forsendubreytingar sem allir verða að vita af.