157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:00]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fagna því að við séum loksins að samþykkja samgönguáætlun. Síðasta samþykkta áætlunin var árið 2020 og það er löngu tímabært að vera með skýra framtíðarsýn og fjármögnun verkefna. Það skiptir nefnilega máli að fjármagna áætlanir. Þvert á það sem oft hefur verið haldið fram fær Austurland verulegt fjármagn til nýframkvæmda. Þá má nefna Öxi, Sléttubrú, veginn inni í Reyðarfjarðarbotni, framkvæmdir við Egilsstaðaflugvöll, Jökuldalsveg að Stuðlagili og undirbúning Fjarðaganga. Þá er verið að stórauka framlög til viðhalds vega um allt land. Hefði ég viljað sjá meira? Já, svo sannarlega. Ég hefði vissulega viljað sjá meiri áherslu á Suðurfjarðaveg, sem er hluti af þjóðvegi 1 þar sem skólabörnum er ekið daglega við aðstæður sem eru ekki ásættanlegar. Innviðaskuldin er gríðarleg og það á við um öll landsvæði. Mikilvægast núna er að framkvæmdir hefjist og að við höldum áfram að byggja upp samgöngur á Austurlandi, Norðausturlandi og um allt land. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )