157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:11]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Já, hér erum við að samþykkja samgönguáætlun. Sú sem hér stendur fagnar að sjálfsögðu öllum samgöngubótum. Við viljum öll að sjálfsögðu líka meira og hraðar en hæstv. innviðaráðherra hefur ekki sagt okkur fullkomlega satt. Samgönguáætlun er ekki fullfjármögnuð. Það er ekkert verið að ræsa neinar vélar. Það er ekki verið að byrja að bora þannig að ég bara bið menn um að koma heiðarlega fram og vera ekki að skapa væntingar sem ekki er hægt að standa undir. Þessi áætlun er afturhlaðin og Austfirðingar hafa verið sviknir, m.a. um göng. Það er ekki fallegt að svíkja áður samþykktar áætlanir. Ég hafði gert mér væntingar um meira, ekki síst vegna þess að hér hafa verið hækkaðir skattar af þessari ríkisstjórn ítrekað og sagt að slíkt ætti að fara í samgöngubætur, þannig að eins og hv. þingflokksformaður Miðflokksins sagði hérna áðan þá mun ég sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.