157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:13]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það hefur margt komið fram í þessari umræðu. Innviðafélagið er vanbúið og ekki tilbúið og spilar ekki með samgönguáætlun sem er ekki fjármögnuð, þvert á yfirlýsingar. En það sem lítið hefur verið rætt núna, vegna þess að það er ekki rætt í samgönguáætlun, eru þessir stóru hlutir sem eru samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Ég vek athygli á því að hún er fullkomlega ófjármögnuð. Það voru uppi galnar hugmyndir sem kjósendur algjörlega höfnuðu um að breyta Keldnalandinu í einhverja, ég veit ekki hvað það átti að vera en það er eitt versta skipulag sem sést hefur. Sömuleiðis er gert ráð fyrir 143 milljörðum í veggjöld sem engin útfærsla er á. Þetta var ekki rætt, virðulegur forseti, og hefur ekki fengist rætt hér í þinginu. Beiðni minni um sérstaka umræðu um þessi mál frá því í upphafi árs er ekki einu sinni sinnt.

Virðulegur forseti. Það sýnir í hnotskurn hvernig þessi vinnubrögð eru.