samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Við gerum í dag atlögu að einhvers lags héraðsmeti í vondri væntingastjórnun. Það er alveg makalaust að fylgjast með þessu kvaki sem hverfist um það að þetta sé allt saman fullfjármagnað þegar við okkur blasir að hér á að keyra alla skatta og gjöld í botn en samt sér ekki til lands varðandi þá samgönguáætlun sem hér liggur fyrir. Það á að bæta stórkostlega við í tengslum við tafagjöld samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það liggja fyrir í þessu máli 17.000 milljarða áform um skatta á grundvelli innviðafélagsins og ef vel tekst til þá verða þeir meiri. 1,7% af vergri landsframleiðslu verða einhvers lags grunnskattar á akstur og ökutæki. Þetta er því miður hálfsnautleg nálgun þegar stjórnarliðar mæta hér og segja að þetta sé allt saman fullfjármagnað en það er það ekki. Við eigum að segja satt. Því miður munu skattar á akstur og ökutæki vaxa í hlutfalli (Forseti hringir.) sem engan hafði órað fyrir fyrir stuttum tíma síðan og ég óttast að enn sjái ekki fyrir endann á þeim hugmyndum sem hér verða leiddar í lög á þessu þingi og því næsta.