samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Góður dagur fyrir Ísland, segir hæstv. ráðherra. Við fórum hér í að stórhækka kílómetraskatta, við stórhækkuðum vörugjöld, hér voru veiðigjöldin hækkuð og öllu þessu fylgdu sömu loforðin: stórfellt átak í uppbyggingu samgöngumannvirkja. Væntingastjórnun þessarar ríkisstjórnar er á grunnskólastigi að mínu mati. Það sem er gefið í skyn að muni gerast er hvergi nærri því það sem er að fara að gerast. Ég minni á þau orð sem féllu hér í umræðunni um veiðigjöldin, að þetta myndi fólk sjá heima í héraði. Í því samhengi bendi ég á Norðausturkjördæmi og verðmætasköpunina sem á sér stað þar og ber hana saman við samgönguáætlun, þar fer ekki saman hljóð og mynd.