samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hér er gerð heiðarleg tilraun til að ræða það sem Alþingi ber ábyrgð á og afstaða ríkisstjórnarinnar er mjög skýr: Nei, þetta skal vera unnið á bak við luktar dyr. Það getur vel verið að Alþingi Íslendinga beri ábyrgð á yfir 300 milljörðum en við ætlum að sjá til þess að enginn fái að vita hvernig það er gert. Það er dapurlegt en útskýrir samt svo margt hvernig þessi atkvæðagreiðsla fer og hún verður í minnum höfð, munið þið það, hæstv. ríkisstjórn ætlar að halda hundraða milljarða framkvæmdum bak við luktar dyr. Þetta eru vinnubrögð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.