samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Hér birtist í raun hluti af þeim athugasemdum sem umsagnaraðilar höfðu við áætlunina og var ekki unnt að fjármagna. Mörg af þeim verkefnum sem sett eru fram í þessari breytingartillögu sem snúa að sjóvörnum, ferjuáætlun og öðru eru mjög jákvæð þó að þau nái ekki yfir allt það sem hefði þurft að bregðast við. Gallinn er hins vegar sá að það er ekki búið að fjármagna þessi verkefni. Tillagan helst í hendur við hvort hægt verði að færa verkefni yfir í innviðafélagið en það er allsendis óvíst eins og staðan er núna.